Re: W123 230E 1982

#12
Þessi bíll er enn í minni eigu. Hann fékk sína venjubundnu smurningu í vor eftir vetrardvala - og reyndar var skipt um á drifi líka, en skildist á þeim á Klöpp að það hafi ekki verið gert í dágóðan tíma.

Ég keyrði hann ca 2000 km í sumar og fór meira segja á honum til Akureyrar og held að hann hafi haft gott af smá hreyfingu :Driverauto: . Eyðslan uþb 9,6 lítrar í þeim túr sem ég kalla gott á 34 ára gömlum bíl.

Varðandi sprautun að þá hafa húsnæðiskaup og framkvæmdir þeirra vegna létt aðeins budduna. Svo hef ég verið erlendis við störf undanfarin ár og haft lítinn tíma til að sinna honum - en hann heldur bara áfram að safna árum í bílskúrnum hjá mér.

OT. Annars hef ég verið að leita eftir yngri bróður fyrir hann. Man einhver ykkar eftir 300E bílnum sem var keyrður eitthvað um 60-70 þús og var til sölu um daginn - 93 árg minnir mig. Seldist sá bíll eða hætti eigandinn við sölu?
Mercedes Benz W123 230E árg. 1982 -húsbóndabíllinn-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
atligu skrifaði: ...veifað til nágrannans á sínum Toyota Yaris sem kæmist í hólfið milli framsætanna hjá þér!!!

Re: W123 230E 1982

#13
Stinnitz skrifaði: OT. Annars hef ég verið að leita eftir yngri bróður fyrir hann. Man einhver ykkar eftir 300E bílnum sem var keyrður eitthvað um 60-70 þús og var til sölu um daginn - 93 árg minnir mig. Seldist sá bíll eða hætti eigandinn við sölu?
Veit ekki hvort hann er seldur, er með símanr. hjá eigandanum, sendi þér það í einkapósti ;)
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: W123 230E 1982

#14
Benni skrifaði:
Stinnitz skrifaði: OT. Annars hef ég verið að leita eftir yngri bróður fyrir hann. Man einhver ykkar eftir 300E bílnum sem var keyrður eitthvað um 60-70 þús og var til sölu um daginn - 93 árg minnir mig. Seldist sá bíll eða hætti eigandinn við sölu?
Veit ekki hvort hann er seldur, er með símanr. hjá eigandanum, sendi þér það í einkapósti ;)

:tumbsup2:
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND