Jæja loksins er maður kominn á Benz aftur. Undanfarin ár hef ég verið að leita að vel með förnum W123, en þeim hefur snarfækkað á klakanum síðastliðinn áratug. Meginástæðan fyrir þessum áhuga hjá mér af þessu boddíi er að karl faðir minn átti svona bíl þegar ég var 17 ára og þegar aldurinn færist yfir mann hugsar alltaf um fyrsta bílinn sem maður keyrði – og bílinn sem kveikti Benz bakteríuna.
En loksins komst hann í leitirnar. Fyrir tilviljun sá ég þennan gerðarlega W123 á bilasolur.is. Og viti menn. Þarna var kominn bíll sem var bara nánast eins og bíllinn sem minntist á hér að ofan. Þetta er 230E árg 1982 og er einungis ekinn 139.000 km. Bíllinn er með lúgu, blárri innréttingu (sem ég veit að margir hér inni fíla ekki, en bíll pabba var einmitt þannig), silfurgrár og með höfuðpúða afturí. Til að gera langa sögu stutta var gengið frá kaupunum og þar sem ég er staddur erlendis við störf kaupi ég bílinn óséðan! En af myndum að dæma og að sögn föður míns sem sá um kaupin fyrir mig lítur bíllinn vel út – bæði að utan og innan. Bíllin fer í geymslu eftir helgi og verður einungis keyrður á sumrin.
Saga bílsins. Hann er að mér skilst fluttur inn 2001 og eru þrír eigendur af honum hérna heima – allt eldri menn. Síðustu ár hefur hann verið lítið ekinn og virðist hafa verið dekstrað við hann.
Ég hef ekki önnur plön nema að skoða bílinn gaumgæfilega til að athuga hvort það þurfi að gera eitthvað. Lakkið er gott, en ætla að láta laga litla beyglu við aftara bretti farþegamegin og svona eitt og annað. Líklega læt ég heilmála hann síðar, þar sem stefnan er að eiga bílinn lengi. Hugsanlega verður hann settur á baroque felgur.
Ég á því miður engar myndir þar sem hann er “dottinn” út af bilasolur.is, en smelli væntanlega nokkrum myndum af honum og updeita þráðinn þegar ég kem heim í frí í október.
Góðar stundir.
W123 230E 1982
#1Mercedes Benz W123 230E árg. 1982 -húsbóndabíllinn-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
atligu skrifaði: ...veifað til nágrannans á sínum Toyota Yaris sem kæmist í hólfið milli framsætanna hjá þér!!!