W123 230E 1982

#1
Jæja loksins er maður kominn á Benz aftur. Undanfarin ár hef ég verið að leita að vel með förnum W123, en þeim hefur snarfækkað á klakanum síðastliðinn áratug. Meginástæðan fyrir þessum áhuga hjá mér af þessu boddíi er að karl faðir minn átti svona bíl þegar ég var 17 ára og þegar aldurinn færist yfir mann hugsar alltaf um fyrsta bílinn sem maður keyrði – og bílinn sem kveikti Benz bakteríuna.

En loksins komst hann í leitirnar. Fyrir tilviljun sá ég þennan gerðarlega W123 á bilasolur.is. Og viti menn. Þarna var kominn bíll sem var bara nánast eins og bíllinn sem minntist á hér að ofan. Þetta er 230E árg 1982 og er einungis ekinn 139.000 km. Bíllinn er með lúgu, blárri innréttingu (sem ég veit að margir hér inni fíla ekki, en bíll pabba var einmitt þannig), silfurgrár og með höfuðpúða afturí. Til að gera langa sögu stutta var gengið frá kaupunum og þar sem ég er staddur erlendis við störf kaupi ég bílinn óséðan! En af myndum að dæma og að sögn föður míns sem sá um kaupin fyrir mig lítur bíllinn vel út – bæði að utan og innan. Bíllin fer í geymslu eftir helgi og verður einungis keyrður á sumrin.

Saga bílsins. Hann er að mér skilst fluttur inn 2001 og eru þrír eigendur af honum hérna heima – allt eldri menn. Síðustu ár hefur hann verið lítið ekinn og virðist hafa verið dekstrað við hann.

Ég hef ekki önnur plön nema að skoða bílinn gaumgæfilega til að athuga hvort það þurfi að gera eitthvað. Lakkið er gott, en ætla að láta laga litla beyglu við aftara bretti farþegamegin og svona eitt og annað. Líklega læt ég heilmála hann síðar, þar sem stefnan er að eiga bílinn lengi. Hugsanlega verður hann settur á baroque felgur.

Ég á því miður engar myndir þar sem hann er “dottinn” út af bilasolur.is, en smelli væntanlega nokkrum myndum af honum og updeita þráðinn þegar ég kem heim í frí í október.

Góðar stundir.

Mercedes Benz W123 230E árg. 1982 -húsbóndabíllinn-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
atligu skrifaði: ...veifað til nágrannans á sínum Toyota Yaris sem kæmist í hólfið milli framsætanna hjá þér!!!

Re: W123 230E 1982

#2
Til hamingju með þessi kaup Brynjar og velkominn á spjallið að nýju. Þetta er væntanlega grái Benzinn sem Sveinn "linkaði" á í söluþræðinum. Hlakka til að sjá myndir af bílnum. :D
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: W123 230E 1982

#4
JBV skrifaði:Til hamingju með þessi kaup Brynjar og velkominn á spjallið að nýju. Þetta er væntanlega grái Benzinn sem Sveinn "linkaði" á í söluþræðinum. Hlakka til að sjá myndir af bílnum. :D
Jú þetta ku vera bíllinn sem var linkað á í söluþræðinum...
Mercedes Benz W123 230E árg. 1982 -húsbóndabíllinn-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
atligu skrifaði: ...veifað til nágrannans á sínum Toyota Yaris sem kæmist í hólfið milli framsætanna hjá þér!!!

Re: W123 230E 1982

#6
Takk fyrir þetta Sveinn!

#7
Jæja, smá update. Hef aðeins verið að hreyfa hann í vor og er hann kominn í sumargeymslu hjá mér suður með sjó. Eina vandamálið er sjálfsagt að ég þarf bara að ná að hreyfa hann meira ... Núna keyrður 142K

En hann er að fara í málun í næstu viku þar sem hann verður málaður fyrir neðan hliðarlista allan hringinn plús húdd. Svo þarf ég bara að koma honum í smur og smá skoðun til að friða samviskuna.

Tek fyrir og eftir myndir og vonast til að geta sett þær inn með sumrinu.

Góðar stundir.
Mercedes Benz W123 230E árg. 1982 -húsbóndabíllinn-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
atligu skrifaði: ...veifað til nágrannans á sínum Toyota Yaris sem kæmist í hólfið milli framsætanna hjá þér!!!

Re: W123 230E 1982

#9
Jæja, kannski er kominn til að svara með updeit með þessa bifreið. Það hefur mikið gengið á með hann í viðhaldi. Doktorinn fékk hann til sín í yfirhalningu og þar kom meira í ljós en ég hafði búist við. Skipt var um heddpakkningu og allt sem því fylgir og í framhaldi var bara vaðið í allt. Pústgrein, bremsur, splunkunýjar dælur (GE Bílar), bensíndæla og overall sem þurfti að laga og gera.

Næst á dagskrá er sprautun, sem átti að gerast áður en þessar stóru viðgerðir fóru fram, og vonandi fær hann að njóta sín. Bíllinn er bara mjúkur og góður og notaður í almennan akstur, svona semi spari, og reynist vel. Myndir vonandi koma síðar þegar maður finnur rétta manninn í sprautun, en lofað verður að engu verður til sparað, enda er þetta að mörgum ólöstuðum heillagasti 230E bíll landsins.

cron