Re: Mercedes-Benz 300GE, 1990

#42
Þessi virðist hafa orðið fyrir barðinu á einhverjum órpúttnum aðilum síðustu nótt. Mig grunar að einhverjum hafi langað að fá smá lögg af eldsneyti án þess að þurfa að borga fyrir það, svona á þessum síðustu og verstu! Í leiðinni tókst viðkomandi að eyðileggja læsinguna þannig að hún var föst læst eftir að henni var lokað aftur. Ekkert bensín á bílnum og ekki hægt að opna lokið. Mjög óþægilegt, því ekki var einu sinni hægt að opna lokið með þeirri neyðaropnun sem í boði er. Bjarta hliðin er þó að bíllinn var ekkert skemmdur, ja nema læsingin :)
Sveinn

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1991

#45
Þessi eldsneytisþjófnaður er alveg óþolandi. Þessir aumingjar sem eru að þessu eru stundum að valda tjóni fyrir tugi þúsunda og ná kanski 5 lítrum...! :evil: Svona aumingjar hafa borað gat á bensíntank hjá mér á nánast alveg bensínlausum bíl.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1990

#46
Þessi verður fornbíll á næsta ári! ...merkilegt, því ég upplifi hann alls ekki þannig, þetta er jú brúksbíllinn minn :)
Var aðeins að gera smá tilraunir með trukkafelgurnar. Lengi búinn að vera að spá í að prófa þetta til að sjá hvernig það kæmi út :roll:
Málaði þetta bara öðru megin til prufu.
Sveinn

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1990

#48
Já, ég veit, svolítið sammála því :) ...þetta er bara svona eitt af því sem ég varð að prófa. Gott veður í dag, ákvað að þvo bílinn og bóna og láta verða af því prófa þetta. Ætlað að leyfa þessu að vera svona í nokkra daga og sjá hvernig þetta gerir sig ;) Reyndar sagði ég það sama þegar ég málaði felgurnar svartar og þær eru það enn :roll:
Sveinn