Ég man ekki alveg hvenær ég keipti hann, en hann hefur staðið inn í skúr í smá tíma. Sótti hann til KEF með kerru.
Keipti hann með bilaða vél og ætlaði að skipta um hana. Hann var 200E. Mér stóðu nokkrar vélar til boða. m102 200e, m102 230e og svo vél úr 250D. Ég trassaði það bara alltaf að sækja þetta og endaði það þannig að ég sat uppi vélarlaus! Rúnar reyndi að koma til bjargar með vél, en svo kom það í ljós að hún myndi ekki passa. Þá voru góð ráð dýr. Rúnar tók upp símann og fann eina vél handa mér. Sú vél kom úr 230E og verður minn því 230e þegar að yfir lýkur.
Ég samdi um kaup á henni, hífði hana uppúr og sótti hana svo í gær. Vélin sem ég keipti var með dælu fyrir ASD og hleðslujafnara, sem betur fer. Bíllinn er nefninlega með ASD og ég var ekki að nenna því að færa dæluna á milli.
Eftir að ég sótti vélina fór ég í það að losa vélina sem var í bílnum mínum. Staðan núna er sú að hún er alveg laus fyrir utan 1 helvítis djöfulsinns andskotans bolta sem bara neitar að skrúfast út! Var byrjaður að tjakka vélina upp þegar ég tók eftir því að hann var en þá í. ARG! Ætla að skoða þetta betur á morgun. Kanski enda ég á því að láta skiptinguna síga niður að aftan.
Vélin sem ég keipti fer þó ekki í bílinn strax því ég þarf að skipta um undirlyftur og yfirfara hana áður en hún fer í bílinn. Prufaði að snúa henni aðeins og...hún snýst allavega
Bíllinn sjálfur var nokkuð ryðgaður og hef ég verið að sjóða í hann þegar ég hef tíma og nennu.
Hef engin framtíðarplön fyrir hann. Þó er ljóst að hann þarf einhverja sprautun að hluta allavega. Mun sennilegast gluðra einhverju á hann sjálfur. Sé ekki fram á að eiga hann mikið lengur en þann tíma sem það tekur að laga hann.
Þegar ég keipti hann var búið að skít mixa bætur fyrir ryð á ýmsum stöðum. Þar hafði járn plata verið límkíttuð undir ryðgatið og sparslað yfir. Ég skar ryðið úr og sauð í...á eftir að sjóða slatta samt...
Bíllinn er/var með aircon, en eftir að ráðfæra mig við Þröst bílahjúkku ætla ég að taka það úr honum...skemmdi líka rafmagns kælinn fyrir það áðan...alveg óvart reyndar.
Jæja, myndir:
Hann er allur út í kókaíni eftir að kókaín verksmiðjan mín sprakk
[img]http://img84.imageshack.us/img84/2928/img3192x.jpg[/img]
Hérna er ég að klára að losa allt frá.
[img]http://img130.imageshack.us/img130/3521/img3193o.jpg[/img]
Flottur litur, en illa sprautaður. Hefur verið einhver bílskúrssprautun.
[img]http://img816.imageshack.us/img816/7972/img3194.jpg[/img]
Vélarsalurinn eins og hann er núna. Gamla vélin en þá í.
[img]http://img143.imageshack.us/img143/2364/img3197wi.jpg[/img]
Vélin sem fer í. Hún hangir þarna í vélagálga, en er komin á vélastand núna.
[img]http://img692.imageshack.us/img692/7135/img3199ag.jpg[/img]
Tómur vélasalurinn á bílnum sem ég tók vélina úr!
Kem með update á morgun þegar ég nenni, gefið að ég nái þessum bolta djöfli úr!