W124 230E '90 - Heldur áfram!

#1
Jæja, best að koma með þráð um þennan.

Ég man ekki alveg hvenær ég keipti hann, en hann hefur staðið inn í skúr í smá tíma. Sótti hann til KEF með kerru.

Keipti hann með bilaða vél og ætlaði að skipta um hana. Hann var 200E. Mér stóðu nokkrar vélar til boða. m102 200e, m102 230e og svo vél úr 250D. Ég trassaði það bara alltaf að sækja þetta og endaði það þannig að ég sat uppi vélarlaus! Rúnar reyndi að koma til bjargar með vél, en svo kom það í ljós að hún myndi ekki passa. Þá voru góð ráð dýr. Rúnar tók upp símann og fann eina vél handa mér. Sú vél kom úr 230E og verður minn því 230e þegar að yfir lýkur.
Ég samdi um kaup á henni, hífði hana uppúr og sótti hana svo í gær. Vélin sem ég keipti var með dælu fyrir ASD og hleðslujafnara, sem betur fer. Bíllinn er nefninlega með ASD og ég var ekki að nenna því að færa dæluna á milli.

Eftir að ég sótti vélina fór ég í það að losa vélina sem var í bílnum mínum. Staðan núna er sú að hún er alveg laus fyrir utan 1 helvítis djöfulsinns andskotans bolta sem bara neitar að skrúfast út! Var byrjaður að tjakka vélina upp þegar ég tók eftir því að hann var en þá í. ARG! Ætla að skoða þetta betur á morgun. Kanski enda ég á því að láta skiptinguna síga niður að aftan.

Vélin sem ég keipti fer þó ekki í bílinn strax því ég þarf að skipta um undirlyftur og yfirfara hana áður en hún fer í bílinn. Prufaði að snúa henni aðeins og...hún snýst allavega :D

Bíllinn sjálfur var nokkuð ryðgaður og hef ég verið að sjóða í hann þegar ég hef tíma og nennu.

Hef engin framtíðarplön fyrir hann. Þó er ljóst að hann þarf einhverja sprautun að hluta allavega. Mun sennilegast gluðra einhverju á hann sjálfur. Sé ekki fram á að eiga hann mikið lengur en þann tíma sem það tekur að laga hann.

Þegar ég keipti hann var búið að skít mixa bætur fyrir ryð á ýmsum stöðum. Þar hafði járn plata verið límkíttuð undir ryðgatið og sparslað yfir. Ég skar ryðið úr og sauð í...á eftir að sjóða slatta samt...

Bíllinn er/var með aircon, en eftir að ráðfæra mig við Þröst bílahjúkku ætla ég að taka það úr honum...skemmdi líka rafmagns kælinn fyrir það áðan...alveg óvart reyndar.

Jæja, myndir:

Hann er allur út í kókaíni eftir að kókaín verksmiðjan mín sprakk :evil:

[img]http://img84.imageshack.us/img84/2928/img3192x.jpg[/img]
Hérna er ég að klára að losa allt frá.

[img]http://img130.imageshack.us/img130/3521/img3193o.jpg[/img]
Flottur litur, en illa sprautaður. Hefur verið einhver bílskúrssprautun.

[img]http://img816.imageshack.us/img816/7972/img3194.jpg[/img]
Vélarsalurinn eins og hann er núna. Gamla vélin en þá í.

[img]http://img143.imageshack.us/img143/2364/img3197wi.jpg[/img]
Vélin sem fer í. Hún hangir þarna í vélagálga, en er komin á vélastand núna.

[img]http://img692.imageshack.us/img692/7135/img3199ag.jpg[/img]
Tómur vélasalurinn á bílnum sem ég tók vélina úr!

Kem með update á morgun þegar ég nenni, gefið að ég nái þessum bolta djöfli úr!
Seinast breytt af Þórður A. þann 10 Okt 2010, 18:13, breytt 3 sinnum alls.


Re: W124 2xxE '90

#2
Jæja, náði þessum bolta úr og hélt gleðinni áfram.

[img]http://img715.imageshack.us/img715/1927/mynd0242.jpg[/img]
Hífði vélina upp...

[img]http://img341.imageshack.us/img341/6311/mynd0243.jpg[/img]
Svona er vélasalurinn núna...

[img]http://img705.imageshack.us/img705/5337/mynd0245.jpg[/img]
JEPPI!

[img]http://img820.imageshack.us/img820/4141/mynd0244.jpg[/img]
Svo tók ég vatnsdæluna af...á ekki að vera pakning á milli hennar og vélar???

Kv.

Re: W124 2xxE '90

#3
Allt komið á skrið, vel gert !

lætur mig vita með gömlu vélina ;)
Gunnar Smári s.866-8282

Mercedes-Benz E 220 '95
Mercedes-Benz CLK 320 '99 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz C 220 '98 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz 320 CE '94 Sportline [Seldur]
Mercedes-Benz 230 CE '91 [Seldur]

Re: W124 2xxE '90

#4
Þórður A. skrifaði:Jæja, náði þessum bolta úr og hélt gleðinni áfram.

Svo tók ég vatnsdæluna af...á ekki að vera pakning á milli hennar og vélar???

Kv.
Jú, það fylgir pakkning með nýrri dælu, verst hvað það er viðkvæmt drasl.
Ég notaði síðast þegar ég skipti um dælu bara pakkningalím, það var mun hentugara efni í þetta.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: W124 2xxE '90

#5
Hlynzi skrifaði:
Þórður A. skrifaði:Jæja, náði þessum bolta úr og hélt gleðinni áfram.

Svo tók ég vatnsdæluna af...á ekki að vera pakning á milli hennar og vélar???

Kv.
Jú, það fylgir pakkning með nýrri dælu, verst hvað það er viðkvæmt drasl.
Ég notaði síðast þegar ég skipti um dælu bara pakkningalím, það var mun hentugara efni í þetta.
Já...ég setti sikaflex þarna á milli...enginn skaði skeður þó, en ætti ég að skafa það af og setja eitthvað pakkningar lím?

Og alveg þykir mér magnað að þetta hafi gengið án pakkningar eins og þetta var...

Re: W124 2xxE '90

#6
Fór í poulsen til að kaupa pakkningar lím en gleymdi alveg hvað ég ætlaði að kaupa þegar ég kom þangað...

...labbaði út með sparsl!

En þetta ætlar að vera smá vesen. Vélin sem ég fékk passar ekki beint ofaní því að einhver sensor fjandi er ekki á réttum stað á vélinni sem ég fékk. Á vélinni minni er hann hjá swing hjólinu en hann er inni í kveikjunni á vélinni sem ég fékk... Þarf að skoða betur og ráðfærst við þekkingar meiri menn áður en ég held áfram...

Re: W124 2xxE '90

#7
Er að pæla í því hvað ég þarf að gera.

Hlutir sem mig vantar/skipti um eru:

Húdd lamir Komið
Frambretti bílstjóra meginn Komið
Bensín slanga + dæla komið
Aftur stuðari Komið
Hugsanlega fram farþega hurð, gæti þó reddað henni ef ég legg mikið í það... - reddað
Plastið inn í grillið
Lok á framstuðarann
Stefnuljós að framan - komið
Afturljós - Komið
Olíupönnu (sú sem er á vélinni passar, en er ekki rétt)...held þó að Rúnar reddi henni fyrir mig - Reddaði þessu með því að smíða hlíf á þá sem fyrir var.
Skottlok - Keipt og komið á!
Inrétting - Keipt, en ekki komin í.

Er líka að pæla í að skipta um lit. Litir sem koma til greina eru:
568 signal red - Kemur sterklegast til greina eins og er.
372 dökk blár
814 blá grænn
540 Barolo red (orginal liturinn)
366 azurite blue
862 drapplitaður
870 drapplitaður
804 Grænn, væri flottur en ill seljanlegur þannig :(
Og svo eru alltaf nýjir litir að detta inn í kollinn á mér... Er ekki viss um að þessi litanúmer séu rétt :D


Var að gæla við það að gera hann facelift...en held að ég sleppi því :roll:

Hann þyngist með hverjum deginum núna! Er alltaf að sjóða í og bæta hann! Vonandi verður hann sem næst riðlaus þegar ég klára hann...

Þýðir voða lítið að koma með mynda-update þar sem hann lúkkar alveg eins og á síðustu myndum :lol:
Seinast breytt af Þórður A. þann 09 Okt 2010, 15:42, breytt 8 sinnum alls.

Re: W124 2xxE '90

#8
Ég fletti honum upp í gríni og sá að það er búið að farga plötunum :? Allavega er það skráð þannig...

Ég hringdi samt fyrir 2-3 mánuðum og bað um að númerin yrðu geymd í 1 ár í viðbót, það var samþykkt.

Þýðir þetta að ég þurfi að borga fyrir nýjar plötur, þó svo að ég hafi beðið um að þær yrðu geymdar fyrir mig???

Re: W124 2xxE '90

#10
Staðan eftir daginn í dag er sú að ég kláraði að sjóða í innra brettið farþega meginn... Á þó eftir að búa til festingu og sjóða hana við til þess að festa fram stuðarann. Ég byrjaði líka að pússa fram stuðarann upp og sparslaði smá í hann.

Svo gerði ég við hurðina sem ég var ekki viss hvað ég ætlaði að gera með.

Hurðin var svona:
[img]http://img651.imageshack.us/img651/7128/mynd0253.jpg[/img]

Ég skar þetta stykki úr öðrum bíl og svo líka úr mínum. Púnkt sauð það svo til að byrja með:
[img]http://img517.imageshack.us/img517/6614/mynd0254.jpg[/img]

Eftir að ég var búinn að stilla allt rétt af byrjaði ég að sjóða...tók ekki mynd af því en svona lúkkaði þetta:
[img]http://img19.imageshack.us/img19/6855/mynd0255.jpg[/img]

Svo var það aðal testið! Get ég skrúfað rúðuna upp og lokað eðlilega???
[img]http://img534.imageshack.us/img534/2531/mynd0257.jpg[/img]

Yubb, allt í fína með þetta!

Klára að sjóða þetta á morgun...nenni bara ekki meiru í dag!
Seinast breytt af Þórður A. þann 29 Júl 2010, 19:29, breytt 1 sinni alls.