Blessaður og sæll, já það er ýmislegt sem hefur verið gert þar. 560SEL er á númerum og með fulla skoðun. Hann er alveg að rokka ganglega og aksturslega séð, skipti t.d um bremsuklossa um daginn. Það sem fyrirliggur er að fara í boddívinnu. Er búinn að vera að mappa þetta verkefni upp og gera mér grein fyrir umfanginu, sem er ekkert voðalegt, þetta kostar hinsvegar bara peninga einsog allt annað

Þannig að ég hef alls ekkert verið að flýta mér, ætla mér bara að gera hann betri með því að taka þetta í áföngum.
Helsta boddívinnan felst í því að skipta út hjólbogum að aftan, svo skipta út húddinu(komið), frambretti, framhurð farþegamegin og króm á stuðurum. Þetta eru helstu hlutirnir sem sá eitthvað á. Annars er hann bara hörkugóður.
Ég þarf nú bara að fara að bjóða þér að kíkja aftur í heimsókn og sjá stöðu mála
