Re: 420SEL, W126

#22
hehe veit ekki með að sverta grillið. Mér hefur alveg fundist það koma flott út þegar menn sverta plastið í grillinu á bílum sem eru dökkir á litinn en er ekki viss hvernig það kæmi út á svona hvítum bíl :roll:
hhhmmm en ég á nú reyndar auka plastinnvols í grillið, get þar af leiðandi spreyjað það svart og bara skipt þá aftur yfir í orginalinn ef mér finnst það koma illa út hehe.
Björgvin S
s: 690-8844

Mercedes Benz 420SEL '91
Mercedes Benz 560SEL '87
Toyota Avensis '01
Renault Estafette '77
Honda CBR600F4i '06

Re: 420SEL, W126

#24
Blessaður og sæll, já það er ýmislegt sem hefur verið gert þar. 560SEL er á númerum og með fulla skoðun. Hann er alveg að rokka ganglega og aksturslega séð, skipti t.d um bremsuklossa um daginn. Það sem fyrirliggur er að fara í boddívinnu. Er búinn að vera að mappa þetta verkefni upp og gera mér grein fyrir umfanginu, sem er ekkert voðalegt, þetta kostar hinsvegar bara peninga einsog allt annað :lol: Þannig að ég hef alls ekkert verið að flýta mér, ætla mér bara að gera hann betri með því að taka þetta í áföngum.
Helsta boddívinnan felst í því að skipta út hjólbogum að aftan, svo skipta út húddinu(komið), frambretti, framhurð farþegamegin og króm á stuðurum. Þetta eru helstu hlutirnir sem sá eitthvað á. Annars er hann bara hörkugóður.
Ég þarf nú bara að fara að bjóða þér að kíkja aftur í heimsókn og sjá stöðu mála 8)
Björgvin S
s: 690-8844

Mercedes Benz 420SEL '91
Mercedes Benz 560SEL '87
Toyota Avensis '01
Renault Estafette '77
Honda CBR600F4i '06

Re: 420SEL, W126

#28
Var aðeins að sinna þessum um helgina. Það var kominn tími á að hreinsa upp og grunna yfir smá ryðblett sem hafði myndast þar sem stuðarinn liggur við afturbrettið bílstjóramegin. Tók í leiðinni afturljósin úr til að sjá hvort eitthvað væri komið þar undir.
Björgvin S
s: 690-8844

Mercedes Benz 420SEL '91
Mercedes Benz 560SEL '87
Toyota Avensis '01
Renault Estafette '77
Honda CBR600F4i '06