Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93 "Winterbeater"

#23
Ég skora á þig að kaupa númeraramma og nýjar númeraplötur, gerir svo ógurlega mikið fyrir heildarlookið...

ekkert meira pirrandi en plötur með skrúfum í, sérstaklega ef að það er farið að ryðga út frá þeim...

verulega smekkleg uppgerð, en ég hefði nú gljáfægt allt í vélarrýminu svona fyrst að þú varst byrjaður á því :mrgreen:
Viktor Agnar Falk Guðmundsson
Sími:8462367
BMW E46 320i - MY01 - Schwarz II - Daily
BMW E36 3**i - MY00 - Cosmicschwarz - ///M
BMW E38 750i - MY96 - Orientblau - Induvidual
Dodge Ram Cummins 5.9 12v - MY96 - P-7100

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93 "Winterbeater"

#24
Angelic0- skrifaði:Ég skora á þig að kaupa númeraramma og nýjar númeraplötur, gerir svo ógurlega mikið fyrir heildarlookið...

ekkert meira pirrandi en plötur með skrúfum í, sérstaklega ef að það er farið að ryðga út frá þeim...

verulega smekkleg uppgerð, en ég hefði nú gljáfægt allt í vélarrýminu svona fyrst að þú varst byrjaður á því :mrgreen:
Það eru reyndar spánýjir númerarammar frá Mercedes-Benz klúbbi Íslands á bílnum. Ekki stendur til að endurnýja stráheilar númeraplötur á næstunni. Ætlunin er að yfirfara restina af vélinni þegar klukkan dettur í 500.000km
Mercedes W124 E300 Turbodiesel '93 ek. 375k

Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k

Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93 "Winterbeater"

#26
Annars mæli ég með að rífa olíuverkið úr og nota delivery ventla úr OM606...

Með réttri túrbínu (Holset HX35 með minnkuðu pústhúsi t.d.) er hægt að taka út 400hp þannig án þess að allt fari í steik...

Það eru held ég 6mm DV í OM606... 5.5mm í þessu orginal...

Annars er ég forvitinn um hvað stendur á id plötunni á þínu olíuverki ;)
Viktor Agnar Falk Guðmundsson
Sími:8462367
BMW E46 320i - MY01 - Schwarz II - Daily
BMW E36 3**i - MY00 - Cosmicschwarz - ///M
BMW E38 750i - MY96 - Orientblau - Induvidual
Dodge Ram Cummins 5.9 12v - MY96 - P-7100

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93 "Winterbeater"

#28
Angelic0- skrifaði:Annars mæli ég með að rífa olíuverkið úr og nota delivery ventla úr OM606...

Með réttri túrbínu (Holset HX35 með minnkuðu pústhúsi t.d.) er hægt að taka út 400hp þannig án þess að allt fari í steik...

Það eru held ég 6mm DV í OM606... 5.5mm í þessu orginal...

Annars er ég forvitinn um hvað stendur á id plötunni á þínu olíuverki ;)

Hvað á ég að gera við 400 hestöfl í afturhjóladrifnum fjölskyldubíl?

Þessi gamli höfðingi á að vera eins original og hægt er, ég ætla að keyra þennan mörg ár í viðbót með 150 hesta í húddinu.
Mercedes W124 E300 Turbodiesel '93 ek. 375k

Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k

Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93 "Winterbeater"

#29
Þessi gamli höfðingi hefur átt þann leiða ávana að "merkja sér stæði meira en góðu hófi gegnir". Þá var farið í lekaleit og beindist grunur að þessum fláns fyrir viðvörun á smuolíuhæð. Notaði tækifærið og skipti um smurolíu í leiðinni.

[img]http://i1162.photobucket.com/albums/q52 ... 030221.jpg[/img]

Grunaði ekki gvend, hér hefur gamall o-hringur verið kíttaður í raufina. Þetta er fúsk.

[img]http://i1162.photobucket.com/albums/q52 ... 030222.jpg[/img]

Fékk nýjan hring í næstu smiðju fyrir 80kr og setti við. Lekinn er nú horfinn. Hef ekki séð neina nýja dropa í stæðinu mínu síðustu vikuna.

[img]http://i1162.photobucket.com/albums/q52 ... 030223.jpg[/img]
Mercedes W124 E300 Turbodiesel '93 ek. 375k

Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k

Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu

Re: Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93 "Winterbeater"

#30
Ný yfirfarnir spíssar og bætt aðeins undir gorma svo spíssaþrýstingurinn jókst úr 135 bar í um 140.
Hér má sjá muninn á spíssum úr orginal túrbó OM 603 (til vinstri) og túrbólausum (til hægri) Túrbólausi hefur 115 bar opnunarþrýsting.