Bensinn minn: E300 Turbodiesel '93 "Winterbeater"

#1
Er búinn að eiga þennan eðalvagn síðan í júní '08 og keyra hann 25000 km. Bara skemmtilegur bíll og eyðir litlu. Limmósínufílingurinn leynir sér ekki og alltaf jafn notalegt að hlusta á malið í díselvélinni.

Smá info:

W124 E300 turbodiesel '93

ekinn: 360.000
Vél: 6 strokka turbodiesel 147hö @ 4000sn/min 273Nm @ 2400sn/min
Sjálfskiptur
Annað:
Var með plussáklæði en ég setti í hann svarta leðurstóla úr öðrum w124. Topplúga sem virkar. Læsanlegt hólf milli framsæta. Original Webasto olíumiðstöð (virkar ekki, en það verður lagað)

Þessi lyggur núna inni í upphituðum skúr með innlögð númer, því ætlunin er að taka nokkra hluti í gegn í vetur í rólegheitum. Hér ætla ég að koma reglulega með myndir af því helsta sem gerist.

Þessi mynd var tekin daginn þegar ég eignaðist hann, keypti nýja stjörnu á húddið sama dag :)

[img]http://i571.photobucket.com/albums/ss16 ... ure072.jpg[/img]

Hér er svo mynd af honum þar sem hann stendur inni í skúnum. Einnig glittir þarna í Mercedes W110 '63 190 heckflosse :)

[img]http://i571.photobucket.com/albums/ss16 ... 009032.jpg[/img]

Fyrsta verkefni vetrarins er að taka upp heddið. Aðallega ástandsskoðun og snurfus, því ég vil hafa þetta í topplagi :) Hér eru soggrein og spíssarör komin frá.

[img]http://i571.photobucket.com/albums/ss16 ... 009033.jpg[/img]
Seinast breytt af BragiGuðna þann 29 Nóv 2011, 16:55, breytt 2 sinnum alls.


Mercedes W124 E300 Turbodiesel '93 ek. 375k

Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k

Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu

Re: Benzinn minn: E300 Turbodiesel '93

#2
Hér er svo heddið komið af. Mikið sót hér á ferð. Afsakið léleg myndgæði :/

[img]http://i928.photobucket.com/albums/ad12 ... 0_0087.jpg[/img]

Hér er svo búið að þrífa heddið og slípa ventla. Útblásturventlasætin voru áberandi verst en mér tókst að ná þeim nokkuð góðum fyrir rest. Nú er ég að bíða eftir nýrri heddpakkningu og slípisetti frá kistufelli :)

[img]http://i928.photobucket.com/albums/ad12 ... 0_0094.jpg[/img]

Svo var ég að fikta með sandpappír og slípimassa og þá skeði þetta: Glansandi fínt ventlalok.

[img]http://i928.photobucket.com/albums/ad12 ... 0_0096.jpg[/img]
Mercedes W124 E300 Turbodiesel '93 ek. 375k

Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k

Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu

Re: Benzinn minn: E300 Turbodiesel '93

#4
Flottur þessi, gaman að hafa ventlalokið sjæní
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

Re: Benzinn minn: E300 Turbodiesel '93

#5
Andrinn skrifaði:ssss, flott þetta :clapping:

heddið er svipað og í gömluvélinni minni, nema það var ekkert sót á einum cyl

hvernig er ástandið hjá þér á tímakeðjusleðunum?
tímakeðjusleðarnir eru lítið slitnir og góðir bara
Mercedes W124 E300 Turbodiesel '93 ek. 375k

Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k

Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu

Re: Benzinn minn: E300 Turbodiesel '93

#8
Takk fyrir það :)

Ég hringdi í kistufell í dag og heddpakkningin og slípisettið er komið til landsins, einnig panta ég með þessu nýja heddbolta, það munar ekki um það.

En á meðan ég bíð eftir þessu þá hef ég snúið mér að túrbínu-kerfinu. Hún hefur nefnilega ekki verið að gera það sem hún á að gera. Byrjar ekki að blása fyrr en á 2000 snúningum og kemur inn með látum og blæs einhver 14-18 pund þegar mest var! Klárlega eitthvað bilað þar.

Hér er svo dótið komið upp á borð, greinin sjálf er reyndar ekki hér. ( Afsakið léleg myndgæði)

[img]http://i928.photobucket.com/albums/ad12 ... 0_0097.jpg[/img]

Ég tók eftir því að þessi ventill (eða membran) er föst, þetta er ventill sem að á að hleypa pústinu framhjá túrbínunni við ákveðinn túrbóþrýsting. Þessi ventill er greinilega búinn að vera fastur lengi og hleypir pústinu framhjá allan tímann. :(

Veit einhver hvar maður fær nýjan svona ?

- Er búinn að laga þetta. Ventil-leggurinn var fastur útaf sóti. Ég tók þetta í sundur og hreinsaði sótið með fínum pappír og virkar fínt núna. :)

[img]http://i928.photobucket.com/albums/ad12 ... 0_0098.jpg[/img]
Seinast breytt af BragiGuðna þann 11 Jan 2010, 22:00, breytt 1 sinni alls.
Mercedes W124 E300 Turbodiesel '93 ek. 375k

Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k

Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu

Re: Benzinn minn: E300 Turbodiesel '93

#9
Í dag, aðfangadag, sótti ég niðrá pósthús stóran pakka handa bensanum :D. Hér er komin ný heddpakkning, nýjir heddboltar, og slípisett frá Kistufelli, ásamt 6 glænýjum dísum í spíssana frá Framtak-Blossa :D.
Svo fægði ég jólastjörnuna á húddinu í tilefni dagsins :mercedes:

[img]http://i571.photobucket.com/albums/ss16 ... 0_0105.jpg[/img]
Seinast breytt af BragiGuðna þann 23 Júl 2010, 02:44, breytt 1 sinni alls.
Mercedes W124 E300 Turbodiesel '93 ek. 375k

Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k

Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu