hjalti.g skrifaði:Ég er eiginlega sammála GMG einmitt af því að mér finnst útlit og akstureiginleikar verða að spila saman. Bíllinn er kannski eitthvað fallegri á AMG felgunum en hann er miklu skemmtilegri í akstri á 8-loch. Þar af leiðandi fær 8-loch mitt atkvæði
Ég hreinlega vorkenni þessum aumingja mönnum og konum sem eru að setja 18-19 og alveg upp í 22" á bílana sína

Það kannski lítur vel út en af því að maður gerir sér grein fyrir hvernig er að keyra á þessu þá verður þetta alltaf frekar hallærislegt í mínum augum

Alls ekki hægt að vera sammála þessu!
Þessir bílar verða töluvert skemmtilegri í akstri á stærri felgum og lægri prófíl !
Og 17" 225/45 (eins og var á E420 áður en ég fór uppí 18" AMG) eru bara ansi ljúfar, bílinn verður pínulítið hastari en hægt að leggja hann í beygjur með mun meira öryggi.
Ef menn vilja útlit/þægindi er 17" málið. 18" er hastari en góður fílingur á þeim samt, og auðvitað LANG flottast.