Re: W124 300 E 24v

#2
til hamingju með þennan , hefði keypt hann sjálfur hefði nægilegt fjármagn verið til staðar. !
Magnús B Arnarsson
Subaru Impreza 1996 (winter beater)
Polo 1.4 1999 (seldur)
Vento 2.0 1994 (seldur)
Benz E220 1994 (í notkun)
Kymco 50cc :cool: (selt)
"Losers always whine about their best. Winners go home and f*** the prom queen."

Re: W124 300 E 24v

#4
Benni skrifaði:Flottur 8)

Til lukku með gripinn.
Á að selja W126?
Takk fyrir það, hef ekki ákveðið hvað ég geri með W126 en það er svo sem allt opið í þeim efnum.
Ef einhver hefur áhuga getur sá sami haft samband.
Jón Ottesen
S. 8997383
jonott@simnet.is


Mercedes Benz 300 E 24V "89
Mercedes Benz E 430 4Matic "00

Re: W124 300 E 24v

#6
Þórður A. skrifaði:Var líka að spá í þessum en hikaði svo þegar ég sá hvað það hvíldi mikið á honum.

En flottur er hann. Er ekki rafmagns sportline leðursæti og fullt af aukabúnaði?
Það er búið að borga allt sem hvíldi á honum og jú hann er sæmilega búinn, meðal annars rafmagn og hiti í sætum, leður, topplúga, og ASD.

Annars er ég búinn að versla það helsta sem þarf að skipta um í honum og verður farið í það á næstu dögum.

Handbremsan endurnýjuð, nýir borðar, gormar og barkar.
Smurður vél, skipting og drif - Hvaða læsingar olíu eru menn að nota á ASD drif??
Kveikjulok, hamar og kerti.
Dempara gúmmí að framan.
Skipta um aðra stýfuna að framan og nýjar spindilkúlur í þær báðar.
Nýrri aftur dekk
Hjólastilla
Stýris upphengja.
Þrifa að innan og utan - ekki veitir af!

Ætla að græja þetta um helgina ef ég verð kominn með varahluti.

Tek einhverjar myndir og hendi hérna inn.
Jón Ottesen
S. 8997383
jonott@simnet.is


Mercedes Benz 300 E 24V "89
Mercedes Benz E 430 4Matic "00