Síða 1 af 2

W124 300 E 24v

Innsent: 26 Okt 2009, 00:29
frá Killerboot
Keypti þennan áðan.

Þokkalegasti bíll en þarf að ditta að einu og öðru. Byrja á því að laga handbremsuna og koma honum í skoðun í vikunni.

[img]http://i134.photobucket.com/albums/q116 ... /300_E.jpg[/img]

Mynd frá fyrri eiganda.

Re: W124 300 E 24v

Innsent: 26 Okt 2009, 01:34
frá magnuz
til hamingju með þennan , hefði keypt hann sjálfur hefði nægilegt fjármagn verið til staðar. !

Re: W124 300 E 24v

Innsent: 26 Okt 2009, 08:28
frá Benni
Flottur 8)

Til lukku með gripinn.
Á að selja W126?

Re: W124 300 E 24v

Innsent: 26 Okt 2009, 08:44
frá Killerboot
Benni skrifaði:Flottur 8)

Til lukku með gripinn.
Á að selja W126?
Takk fyrir það, hef ekki ákveðið hvað ég geri með W126 en það er svo sem allt opið í þeim efnum.
Ef einhver hefur áhuga getur sá sami haft samband.

Re: W124 300 E 24v

Innsent: 26 Okt 2009, 12:26
frá Þórður A.
Var líka að spá í þessum en hikaði svo þegar ég sá hvað það hvíldi mikið á honum.

En flottur er hann. Er ekki rafmagns sportline leðursæti og fullt af aukabúnaði?

Re: W124 300 E 24v

Innsent: 27 Okt 2009, 14:14
frá Killerboot
Þórður A. skrifaði:Var líka að spá í þessum en hikaði svo þegar ég sá hvað það hvíldi mikið á honum.

En flottur er hann. Er ekki rafmagns sportline leðursæti og fullt af aukabúnaði?
Það er búið að borga allt sem hvíldi á honum og jú hann er sæmilega búinn, meðal annars rafmagn og hiti í sætum, leður, topplúga, og ASD.

Annars er ég búinn að versla það helsta sem þarf að skipta um í honum og verður farið í það á næstu dögum.

Handbremsan endurnýjuð, nýir borðar, gormar og barkar.
Smurður vél, skipting og drif - Hvaða læsingar olíu eru menn að nota á ASD drif??
Kveikjulok, hamar og kerti.
Dempara gúmmí að framan.
Skipta um aðra stýfuna að framan og nýjar spindilkúlur í þær báðar.
Nýrri aftur dekk
Hjólastilla
Stýris upphengja.
Þrifa að innan og utan - ekki veitir af!

Ætla að græja þetta um helgina ef ég verð kominn með varahluti.

Tek einhverjar myndir og hendi hérna inn.

Re: W124 300 E 24v

Innsent: 27 Okt 2009, 14:28
frá Andrinn
Killerboot skrifaði:Hvaða læsingar olíu eru menn að nota á ASD drif??
Þeir í Baugsbót á Akureyri sögðu mér að nota olíu frá Shell, Spirax A 90 LS

Re: W124 300 E 24v

Innsent: 27 Okt 2009, 20:29
frá hjalti.g
Til lukku, gæti trúað að þarna sé gríðargóður grunnur í góðan bíl :D

Re: W124 300 E 24v

Innsent: 20 Maí 2010, 17:38
frá gmg
Hvað er að frétta af þessum ?

Re: W124 300 E 24v

Innsent: 20 Maí 2010, 22:13
frá Björgvin B
Flottur er hann á litinn ! Til hamingju með glæsilegan Benz ! 8)