Re: w124 230E Fagri Blakkur

#31
Hlynzi skrifaði:Þessi vetnisbúnaður sem ég heyrði um gekk uppá það að búa til vetni í mótornum og fæða það inná með eldsneytinu, vetni er ekki með sama J/L orkuinnihald og eldsneyti en með þessu átti að vera hægt að minnka eldsneytisnotkunina, því fyrir hvern líter af bensíni sem brennur verður til álíka mikið af vatni til, semsagt þessi búnaður býr til vetni og fæðir það beint inná mótorinn, geymir það ekki neitt og lækkar eyðsluna.
Nú vil ég ekki valda neinum vonbrigðum, en ég hef kynnt mér þennan búnað vel og fylgst með svona tilraunum hjá félaga mínum og þetta getur ekki virkað. Orkan sem fer í það að framleiða rafmagnið (til að rafgreina vatn í vetni+súrefni um borð í bílnum) er meiri heldur en orkan sem vélin fær úr vetninu.
Engu að síður áhugaverð hugmynd.

Hér er svo grein um þennan búnað frá Popular Mechanics, sem er virt tímarit í bandaríkjunum.
http://www.popularmechanics.com/automot ... 10717.html" onclick="window.open(this.href);return false;

Góðar stundir

Mercedes W124 E300 Turbodiesel '93 ek. 375k

Toyota Land Cruiser HJ80 '92 4.2 TDI ek. 350k

Toyota Hilux x-cab '91 2.4 TD 38-44" ek. 265k Fjallajeppi með öllu

Re: w124 230E Fagri Blakkur

#32
Jæja hef nú lítið gert í þessum enda lítið sem böggar við daglega notkunn, ég fór þó og keypti mótorhitara hjá Stillingu en hann er svo sem ekki gefins c.a 27 þús bara hitari + snúrur. Þessi hitari er skrúfaður í einn frosttappa á blokkinni og hitar þannig kælivatnið, þetta kemur sér vel því þá þarf ekki að skafa og mótor fer alltaf í gang heitur=minna slit og eyðsla.
í leiðinni keypti ég svo millitec en skv mér fróðari mönnum er ekki æskilegt að setja það á mótor vegna þess að slífarnar "glattast" þ.e það myndast húð á þær sem valda því að smurhringirnir ná ekki að þétta og þá fer hann að brenna olíu. Sölumaðurinn vildi meina að þetta væri undraefni og mætti fara á sjálfskiptingar og allt heila klabbið, ég er nú löngu hættur að trúa eða treysta nokkrum einasta sölumanni þannig að ég spurði þrælreyndan vélfræðing. Það er samt í góðu lagi að setja millitec á drifið og allar legur þ.m.t hjólalegur og er það eitthvað sem er næst á dagskrá. Þetta er nefninlega þrælgott sleipiefni ;)
Ég lét líka verða af því að kaupa mér lakkmassa og svona mössunargræju og er það líka í býgerð að massa bílinn almenninlega. Kem með myndir við tækifæri
:Driverauto:
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

Re: w124 230E Fagri Blakkur

#33
Jæja þar sem er að byrja prófatímabil finnur maður sér alltaf eitthvað annað til þess að gera og þá er fátt vinsælla en að þvo bílinn
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Eins og sést á myndinni er folinn á stáli og plasti yfir veturinn en ég hef ekki komið því í verk að láta umfelga vetrardekkjunum á álið en það stendur til bóta.
Hann er svona fallega ljótur á þessum koppum en þó skárri en svart, ryðgað stálið
:roll:
Það stendur til að skipta út stýrisupphengju og líklega skipti ég um reim og einhver strekkjarahjól í vor eða sumar og kannski í framhaldi af því fer ég yfir alternatorinn sem gæti verið að detta á tíma en það er betra að fara þá bara í gegnum hann.
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

Re: w124 230E Fagri Blakkur

#34
Jæja þá er vorið komið og sumarið og þessi kominn á sumarskóna sína ásamt 11miða
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Ég tók mig þó til áður en skoðun átti sér stað og skipti um stýrisupphengjuna
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Síðan var ég að prófa svona mössunargræju sem ég keypti fyrir vægt gjald í verkfæralagernum.
Fyrir[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Ég náði ekki að taka mynd eftir en sama dag var smá rigning sem sýnir samt ágætlega árangurinn [img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Síðan fór ég að velta fyrir mér leguóhljóði sem ég rakti til rafalsins (alternator) og hann var skrúfaður úr [img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Og byrjað á að skoða kolin og díóðubrúnna sem mér sýnist hafi verið skipt um fyrir svona 30þús km. Afsakið myndin er ekki í nokkrum einasta fókus
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Þá var rafallinn sjálfur skrúfaður í sundur og viti menn legurnar áttu ekki langt eftir. Þær voru samt svo hrykalega fastar á öxlinum að ég endaði á að vanda mig við að skera þær af með slípirokk.
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Nýjar legur fengust í Ljósboganum en önnur legan var ekki standard lega og alveg sér fyrir Bosch alternatora.
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Svo var farið og keyptar nýjar skrúfur í stað þeirra sem löskuðust við opnunina og allt skrúfað saman
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Mér reiknast til að þetta hafi kostað mig 10 þúsund með því að kaupa topp sem passaði á öxulinn og fastan lykil (þessir hlutir eru hræðilega dýrir á íslandi í dag um 3þúsund stikkið).
Við ísetningu var síðan í leiðinni skipt út togleðursreiminni og strekkjarahjól smurt
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Það fór að pirra mig að olíulokið smitaði
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
og því var fjárfest í nýju
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]

Þá fór ég að verða ánægður í bili
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

Re: w124 230E Fagri Blakkur

#36
Andre89 skrifaði:Hvar fékkstu olíulok? Smitar einnig á mínum.
Tækniþjónusta Bifreiða í Hafnarfirði, kostar hjá þeim rúman þúsundkall :lol:
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

Re: w124 230E Fagri Blakkur fær viðhald

#38
Jæja og fullkomnunaráráttan ágerist ég þoli illa olíusmit
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Þarna er öndun frá ventlaloki tengt við lofthreinsaran og þarna í kring er mikið smit
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img] Þetta rör hefur lengi farið í taugarnar á mér og var ég búinn að reyna að laga það með litlum árangri það villdi svo skemtilega til að þetta var til hjá Öskju á litlar rúmar 2000 kr og ég fjárfesti í því og tel þeim aurum vel varið
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img] þá er bara að þrífa allt smitið í burtu
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

Re: w124 230E Fagri Blakkur

#39
Ég verslaði Gollit massa og nano-plús bón hjá doktornum og prufaði um helgina, massin er þægilegur í notkun en það er náttúrulega alltaf handleggur að massa heilan bíl, bónið er líka auðvelt að brúka og er ég bara nokkuð ánægður með árangurinn. Ég kem með myndir af þessu um helgina næstu þegar ég má vera að því að taka myndir 8)
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

Re: w124 230E Fagri Blakkur

#40
Annars er það að frétta af bílnum að ég hef hug á því að skipta um stýrisganginn í honum þ.e stýrisenda og millibilsstöngina ásamt stýristjakknum en þetta hefur verið sett í fjárlög næsta mánaðar. Svo kemur annað slagið brak eins og í einhverjum fóðringum að framan sem ég á eftir að finna út hvaðan kemur.