#42
fráARG22
Skundaði í Bíladoktorinn um daginn og keypti hjá þeim stýrisenda, var reyndar ekki hægt að kaupa nema alla stöngina með innri og ytri stýrisendum en þetta kostaði hlægilega lítið og gefur ekki að sök. Þetta var allt illa gróið og varð ég að kaupa mér sérstakt áhald til þess að berja endana af en þetta hafðist allt á endanum.
Nú finnst mér komið að því að rifja upp það sem hefur verið gert við þennan ágæta farskjót síðan ég kaupi hann í febrúar eða mars 2009.
2009
smíðuð vélahlíf undir bílinn
soðið í nokkur niðurföll
soðinn upp demparaturn v/m framan
skipt um sviss
skipt um gorma að aftan
skipt um vökvaundirlyftur
skipt um ventlaþéttingar
skipt um vatnsláslok
skipt um kveikjulok + hamar
skipt um kerti
skipt um mótorpúða h/m
vélastilling hjá doktornum
smíðað pústkerfi hjá Einari
undirvagn ryðvarinn
skipt um heddpakkningu + bolta (hedd planað og ventlar slípaðir og efra pakkningarsett )
skipt um vatnslás
skipt um hitanema á vatnsdælu
skipt um ballansstangafóðringar að framan
skipt um demparagúmmí að framan
skipt um rafgeymi
skipt um rúðuþurrku
skipt um bensínsíju
hjólalegur að framan smurðar og hert á þeim
skipt um olíu og síju og pakkningu á sjálfskiptingu
skipt um útvarpsloftnet
Felgur hreinsaðar og málaðar
skipt um drifskaptsupphengju + legu
skipt um olíu á drifi
skipt um loftsíju
skipt um vakúmdælu fyrir samlæsingar (notuð)
2010
skipt um yfirspennurelay
skipt um hitastillir í miðstöð(notað)
skipt um rafgeymasæti(notað)
skipt um olíulok
skipt um öndunarrör á mótor
skipt um legur í alternator
sniðin og límd hitaeinangrun undir húdd
skipt um reim
settur rafmagnsmótorhitari á vélablokk frá stillingu
skipt um stýrisupphengju
skipt um stýrisenda innri+ytri
skipt um rúðupissdælu
bíll massaður með Gollid massa
Það eru sennilega örfá atriði sem ég er ekki að muna og ég á enþá eftir að skipta um stýrisdempara og ég hef ekki fundið þetta brak í frammhjólabúnaðnum en það er líka bara annað slagið. Hef í hyggju að skipta aftur út bensínsíjunni því að það lekur alltaf með henni sama hvað ég herði vel á þessu og gæti flánsinn verið skemmdur.
Þetta er orðinn svolítið góður listi
góðar stundir
Seinast breytt af
ARG22 þann 06 Des 2010, 22:23, breytt 1 sinni alls.
Aron G
arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99
Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685
Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228
(Seldur)
Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk