Re: 190E M103 3.0 bsk in project

#71
Búinn að ganga frá bílnum að mestu leiti, á eftir að fá loftsýju, handbremsu borða, aftur stuðara, festa upp pústið og loft tæma þetta helv.... ASD kerfi sem er að gera mig vægast sagt geðveikan. Svo fór ég í geimsluna og náði mér í 3 15" dekkja ganga til að leika á EF ASD kerfið virkar einhverntíman. Kem með myndir um leið og ég klára

Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

Re: 190E M103 3.0 bsk in project

#73
Benni skrifaði:Svo er um að gera að mæta á næsta "hitting" :wink:

Kominn tími á að við fáum að sjá þennan grip þinn "live" 8)

Já það er kominn tími til að hleypa þessum til og leifa honum að hitta aðrar stjörnur
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

Re: 190E M103 3.0 bsk in project

#74
jæja þá er listin yfir hluti sem á eftir að klára orðinn mjög stuttur eða 3 atriði
1: Hægri aftur bremsudælan tók upp á því að leka með afloftunar nipplinum (sprunga í dælinni) og þarf því að skipta henni út.
2: Ég skipti um fóðringar í gírskiptingunni þ.e.a.s. í örmunum úr skiptinum í gírkassan og nú hef ég 5 gíra áfram en finn ekki bakkgírinn þó ég setji í bakk :roll: sem er frekar slæmt þegar ég ættlaði að bakka út úr skúrnum en fór áfram
3: a) Skipta um sverara rörið frá deiliboxi að forðabúri fyrir ASD þar sem það er sprungið á tveimur stöðum
b) Loft tæma ASD kerfið og fá það til að virka :lol:

q) Rífa ASD drastið í burtu og setja LSD með 80% læsingu í staðinn :mrgreen:
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

Re: 190E M103 3.0 bsk in project

#75
Þá er bíllinn kominn með tryggingu og númer
[img]http://memimage.cardomain.com/ride_imag ... _large.jpg[/img]
Var að koma úr fyrsta prufu túrnum og það þarf greynilega að hjólastilla bílinn, en mikið svakalega er hann stífur mig hafði aldrei grunað þetta :lol: Svo kom í ljós að ég hafði gleymt að setja hljóðkútinn undir þannig að þegar ég hleypti örfáum hestum lausum (Þeim sem eru vaknaðir úr vetrardvala) kom þetta skemtilega þýska öskur. En mér sýnist á öllu að ég þurfi aðeins að fara með svipuna í hesthúsið og breja nokkra hesta sem ekki eru að skila sínu. Svo fór viftureymin að ýlfra á mig þegar bíllinn hitnaði þannig að ég á greynilega ekkert að fá að njóta erfiði vetrarins strax.
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

Re: 190E M103 3.0 bsk in project

#78
Olbogi skrifaði:Þá er bíllinn kominn með tryggingu og númer

Kemur vel út svona lágur. Flottur bíll. 8)
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: 190E M103 3.0 bsk in project

#80
AM skrifaði:Sammála, virkilega flottur svona lár. Hvernig felgur á svo að fá sér ?
Hann á að enda á Allessio felgum sem eru á myndu hérna einhverstaðar en svo á ég svo mikið af dekkjum sem ég er búinn að sanka að mér, kominn í 9 ganga þannig að ég ættla að leifa þeim að finna fyrir þunga hægri fætinum áður en hin fara undir

Ég fór á honum út smá rúnt í kvöld og shiiiii það er bara eitt farartæki sem líkist þessu í akstri og það er go-cart, það er ekkert smá hvað þessi bíll liggur þó að hann sé hjólaskakkur á rustl dekkjum. En ég er búinn að reka fram dekkin nokkrum sinnum upp í brettin :( þannig að ég þarf eitthvað að finna út úr því
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið