Mercedes-Benz skrifaði:Ég er mótfallinn þessu og tel að stjórnin hefði átt að ræða þetta betur. Tel að Gunnar hafi brotið gegn öðrum stjórnarliðum með því að stofna til þessarar kosningu um málið án þess að ræða þetta ítarlega við aðra stjórnarliða og gefa málinu meiri tíma til ákvörðunar en gefinn var ..
Mín ökutæki munu verða fjarlægð úr þarna í burtu og ég hef mínar ástæður fyrir því sem ég tel mig ekkert þurfa að útskýra frekar.
Ég hef fylgst með þessum þræði af meiri áhuga en flestum undanfarna mánuði. Vil byrja á að segja að þetta komment finnst mér frekar eiga heima innan stjórnar en á almennum vettvangi. Er þó feginn að það hefur komið fram þar sem að mér gefst þá tækifæri til að segja mína skoðun á þessu en hún er einmitt sú að í almennilegum lýðræðissamfélögum fagna menn skoðunum fjöldans.
Hvað varðar efnið sjálft hefur mér oft þót leytt að geta ekki sett inn hrós um fallegar stjörnur og tel að þessir þræðir eigi að vera opnir. Maður verður bara að gera ráð fyrir að fólk hafi þann þroska til að bera að láta ósagt hluti sem ekki þarf að segja og almennt ætti ekki að setja hamlandi reglur á alla bara af því að innan um og samanvið finnast einstaklingar sem þarf að hefta.