Á að opna fyrir umræður í Bílar félagsmanna ?

Já
Heildar atkvæði: 47 (87%)
Nei
Heildar atkvæði: 7 (13%)
Heildar atkvæði: 54

#41
Stjórnarkreppa í uppsiglingu.

Þessir þræðir leysast of oft uppí einhverja vitleysu og stundum koma fram einhverjar fullyrðingar sem eru beinlínis rangar sem er auðvitað ömurlegt. En mitt mat er að þett sé nú óþarfa viðkvæmni í Rúnari.

Bara mitt álit


Guðbjartur Magnússon

Nissan Patrol 1999, 2,8 38"

W210 1997 Avantgarde, topplúga, leður ofl.
SELDUR

#42
Jaaaaá fínt, já sæll, já fínt já sæll já fínt já sæll...

:lol:
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#43
Ásgeir Yngvi skrifaði:Jaaaaá fínt, já sæll, já fínt já sæll já fínt já sæll...

:lol:
Þarna er væntanlega verið að vitna í frasa hjá karakternum sem leikinn er af Pétri Jóhanni í Næturvaktinni sem hefur verið tekin til sýningar á Stöð 2. Snilldar þættir. :D
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#44
E 220T skrifaði:
Hlynzi skrifaði:Bíddu hefur rúnar ekki verið eiginlega eini maðurinn sem commentar á bílar félagsmanna.

Engin ástæða til að hafa þetta læst eða fjarlægja út bílana sína, hræðsla við neikvæða umsögn ?

Nákvæmlega. Ótrúlegt að eini maðurinn sem hefur kommentað á annarra manna bíla, meira að segja á meðan að þetta var læst skuli vera svona mótfallinn þessu!
Það voru á sínum tíma þegar þetta var læst smá villa í uppsetningunni að stjórnendur á spjallinu gátu svarað þráðum, en það átti að sjálfsögðu að vera lokað á það eins og hjá öðrum og biðst ég velvirðingar á að hafa ekki alltaf tekið eftir því að ég var að svara þar sem það átti ekki að koma neitt svar.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#45
Mercedes-Benz skrifaði:Ég er mótfallinn þessu og tel að stjórnin hefði átt að ræða þetta betur. Tel að Gunnar hafi brotið gegn öðrum stjórnarliðum með því að stofna til þessarar kosningu um málið án þess að ræða þetta ítarlega við aðra stjórnarliða og gefa málinu meiri tíma til ákvörðunar en gefinn var ..

Mín ökutæki munu verða fjarlægð úr þarna í burtu og ég hef mínar ástæður fyrir því sem ég tel mig ekkert þurfa að útskýra frekar.
Ég hef fylgst með þessum þræði af meiri áhuga en flestum undanfarna mánuði. Vil byrja á að segja að þetta komment finnst mér frekar eiga heima innan stjórnar en á almennum vettvangi. Er þó feginn að það hefur komið fram þar sem að mér gefst þá tækifæri til að segja mína skoðun á þessu en hún er einmitt sú að í almennilegum lýðræðissamfélögum fagna menn skoðunum fjöldans.
Hvað varðar efnið sjálft hefur mér oft þót leytt að geta ekki sett inn hrós um fallegar stjörnur og tel að þessir þræðir eigi að vera opnir. Maður verður bara að gera ráð fyrir að fólk hafi þann þroska til að bera að láta ósagt hluti sem ekki þarf að segja og almennt ætti ekki að setja hamlandi reglur á alla bara af því að innan um og samanvið finnast einstaklingar sem þarf að hefta.
Volvo XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
Alpina B3 biturbo 2008 #101