Úff... reyndar hafði maður nú séð slatta af þessu þarna krúsandi um eða í spyrnukeppninni, en hvað ég hefði viljað sjá þennan S500 betur... W221 er bara... ég bara finn ekki orð til að lýsa þessu. Frekar fúlt að hafa farið til akureyrar yfir helgina til þess að fara á bíladaga, keypt VIP passa, og drukkið svo alla laugardagsnóttina og sofið allt of lengi og misst af sýningunni
En jæja burnoutkeppnin og spyrnan voru allavega geðveik og svo var bara svo mikið af flottum bílum í bænum... þetta var nú samt æðisleg helgi
Hefði viljað hitta fleiri benz áhugamenn þarna samt, verst að það var ekkert ákveðið þegar ég fór.