Síða 1 af 2
Innsent: 18 Jún 2007, 02:49
frá Siggi H
ánægður með að þú skulir hafa smellt einni mynd af kagganum mínum! þinn benz var helvíti glæsilegur þarna.
Innsent: 18 Jún 2007, 05:11
frá Júlli
Úff... reyndar hafði maður nú séð slatta af þessu þarna krúsandi um eða í spyrnukeppninni, en hvað ég hefði viljað sjá þennan S500 betur... W221 er bara... ég bara finn ekki orð til að lýsa þessu. Frekar fúlt að hafa farið til akureyrar yfir helgina til þess að fara á bíladaga, keypt VIP passa, og drukkið svo alla laugardagsnóttina og sofið allt of lengi og misst af sýningunni
En jæja burnoutkeppnin og spyrnan voru allavega geðveik og svo var bara svo mikið af flottum bílum í bænum... þetta var nú samt æðisleg helgi
Hefði viljað hitta fleiri benz áhugamenn þarna samt, verst að það var ekkert ákveðið þegar ég fór.
Innsent: 18 Jún 2007, 19:01
frá Hlynzi
Þetta var fín helgi, tjaldstæðið var reyndar í rúst á Sunnudeginum.
Og sýningin bara þokkaleg, hafði mikið gaman að sjá þarna gömlu roadster bílana, svosem MG.
Innsent: 18 Jún 2007, 19:08
frá Oddur
Mjög fallegir bílar, en W123 bíllinn er ekki 230E, heldur M. Benz 200(E 200)
Innsent: 18 Jún 2007, 19:21
frá Ásgeir Yngvi
Corky skrifaði:Mjög fallegir bílar, en W123 bíllinn er ekki 230E, heldur M. Benz 200(E 200)
Sá bíll bar af á þessari sýningu
hehe jú það voru nú margir helvíti flottir þarna

Innsent: 18 Jún 2007, 20:19
frá Siggi H
mér fannst nú bara allir benzarnir flottir þarna.. sérstaklega E55 AMG bíllinn!
Innsent: 18 Jún 2007, 21:16
frá ivar
ég labbaði nú beint í gegnum þetta benz horn án þess að stoppa, en sýningin var góð fullt af dóti þarna til að skoða,
þessir bresku roadsterar voru samt svo ógeðslegir að ég átti erfitt með mig að byrja ekki að sparka í þá..
Innsent: 19 Jún 2007, 00:38
frá yndisþokki
Ásgeir Yngvi skrifaði:Corky skrifaði:Mjög fallegir bílar, en W123 bíllinn er ekki 230E, heldur M. Benz 200(E 200)
Sá bíll bar af á þessari sýningu
hehe jú það voru nú margir helvíti flottir þarna

jamm. hann er nu aðeins ekinn 59xxx frá upphafi og allur orginal og óaðfinnanlegur. ALDREI verið neitt annað gert fyrir þennan bíl nema eðlilegt viðhald