Varðandi W210

#1
Sælir!

Ég er núna að íhuga að láta gamlan draum rætast að hluta til og fjárfesta í E-class.
Fjármálin leyfa kannski ekki það besta í augnablikinu en ég hef verið að sjá nokkra á sölum sem eru á ~1millu. Ýmist gamla leigubíla sem standa í 4-700þ km eða minna ekna bensínbíla.
Þar sem leður er skilyrði eru varla neinir að velja úr. Mig langar helst í hvítan, svartan eða annan dökkan lit en ég hef bara séð einn sem kemur til greina og sá er silfurlitaður '96 E230 classic, ekinn ~190þ á rúma millu. Læt fylgja mynd af honum

En nóg um það, ástæðan fyrir að ég er að pósta hérna um W210 bílana er að ég er byrjandi í Benz heiminum og gæti vel þegið góð ráð.
Getiði eitthvað sagt mér um áreiðanleika þessara bíla svona almennt, er eitthvað sérstakt að hrjá þá, ætti ég að skella mér á einn eða hvað?
Ég veit að það fer allt eftir ástandi bílsins, en er hægt að segja mér eitthvað út frá þessari tegund, árgerð og akstri?
Eru bensínbílarnir að endast vel?

Að sjálfsögðu myndi ég láta skoða bílinn vel fyrir kaup en ætti ég að fara á venjulega skoðunarstöð eða er hægt að láta benz sérfræðinga ástandsskoða ?

Með von um góð viðbrögð og svör :wink:

ps. hef verið að sjá marga flotta E420 í þyskalandi á ~500þ kr, væri kannski sterkari leikur að flytja inn sjálfur betri bíl og enda á svipaðri upphæð og ég er að hugsa um?


E230 bíllinn:
[img]http://barnaland.is/album/img/15002/200 ... 4526_0.jpg[/img]


-Andri Snær

#2
mundi allavega ath lakkið mjög vel,t.d undir hurðargúmmilistunum og etc.mæli ekki með w und s skiptingunni,hefur ekki reynst vel,en þetta eru skemtilegir bílar að keyra.ath líka spindilkúlur og upphengju að framan ofl,gætir látið öskju söluskoða en verður líka að taka með að þú ert ekki að kaupa nýjan bíl :D
MERCEDEZ S 500 ÁRG 94
MERCEDES 230 E COUPE ÁRG 90 í uppgerð
RENAULT KANGOO ÁRG 2011/SVARTUR

GET ALDREI Keyrt eins og Rafynjan
ÞARF Mikið TIL!!!!!
SVONA TVO

#3
hvað er w & s skipting ?

en já ég geri mér grein fyrir að þetta er 11 ára bíll :wink:
svo veit maður ekki hvað maður ætti að gera 'ráð fyrir' í viðhaldskostnað...
þegar 11 ára bíll kostar milljón vill maður samt fá eitthvað áreiðanlegt.

Bíllinn sem ég nota dagsdaglega er t.d. á 17. ári og það hefur ekki verið neinn teljandi kostnaður í viðhald, en kannski ekki sambærilegt.
-Andri Snær

#4
Hef í raun ekki miklu við að bæta það sem GUMMCO ritar hér að ofan nema þetta með W und S takkan hjá skiptingunnni sem var í Benzinum sem ég vann á í 7 ár (árg. 99). Það var aldrei neitt vesen í mínu tilfelli með þetta unit. Hann skipti sér aðeins snarpar þegar hann var í S stillingu. Þetta dót bilaði allavega ekki í minni umsjá.

Annars er hér annað eintak sem auglýst er hérna á stjörnunni sem þú gætir ath einnig. Hann er allavega ekki ekinn nema 150 þús Mercedes Benz E230
[img]http://www.adult.is/images/benz/955d.jpg[/img]
[img]http://www.adult.is/images/benz/955b.jpg[/img]
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#5
það er engin lygi með bilanatíðnina í þessum bílum, ég áhvað samt að fá mér sona bíl síðasta sumar, jú það voru rafmagnspikkles í honum, eins og öllum öðrum nýlegum benzum sem ég hef kynnst nánast, en þetta eru fínir bílar samt, þeirra helsti galli er að ryðga eins og verstu kláfar, skoðaðu hann vel, eins og gummco segir, undir þéttilistana, gaflin, og kíktu undir hjólbogana, og sílsana,

ég fengi mér alveg óhræddur annan w210 bíl, ein sem fór dálædið í mig var hvað maður fékk lítið fyrir allan peningin sem þetta kostaði,
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur

#6
Öndvegis bíll. Ódýrir varahlutir (so far). Menn vilja meina að bílar eldri en 1997 séu smíðaðir úr gamla góða stálinu. Ég er búinn að vera á E320 í ár núna og er alsæll.
Mit freundlichen Grüssen
Ingvar T

Mercedes-Benz E320 - 1996

#7
nei bílarnir eldri en 97 eru ekki smíðaðir úr því, þeir ryðga meira ef eitthvað er, síðustu w124 bílarnir finnst mér líka ryðga eins og..
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur

#8
'99 Benzinn sem ég var á gegst undir ryðendurbætur eins og sumir ykkar munið kanski eftir. Þær endurbætur heppnuðust mjög vel og var bíllinn eins og nýr á eftir. Ekki er gott að segja hvaða árgerð af w210 bíll sé skárstur á boddýi gagnvart ryði. Það eina sem hægt er að ráðleggja væntanlegum kaupendum af w210 Benz er að skoða boddýið vel eins og hér að ofan er lýst. Til að ganga úr skugga um að bíllinn sé ryðlaus eða allt að því. Því inn á milli reynast eintök sem hafa svo til sloppið við að ryðga. Ekki er verra ef liggur fyrir staðfesting um að bíllinn hafi undirgengist ,,claim" þ.e. endurnýjun boddý hluta og málun.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#9
2002-2003 árgerðirnar eiga víst að vera alveg lausar við ryðvandamálið hef ég heyrt.
Fyrri bílar:
2002 E320 cdi estate
500E 1992
E220 T 1993
500E 1993
E420 1995
A160 1999

#10
ósammála
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur
cron