Ætlunin er að leggja af stað úr bænum eftir vinnu föstudaginn 6. október og keyra til Akureyrar. Þar er hugmyndin að leigja bústað yfir helgina og hafa þar aðsetur fram á sunnudaginn.
Planið er nokkurnvegin svona:
Föstudagur 6. október
Lagt verður af stað frá Reykjavík til Akureyrar uppúr kl 5 um eftirmiðdaginn. Ekið beina leið til Akureyrar, með kannski einu stoppi til að snæða kvöldmat. Gist í bústað í Kjarnaskóg um nóttina.
Laugardagur 7. október
Dagurinn tekinn snemma og ekið austur í Aðaldal og bílasafnið að Ystafelli skoðað. Þá verður farið að Hafralæk og Benzarnir þar skoðaðir ef leyfi fæst hjá ábúanda (300 Adenauerinn, tveir 220 bílar og eitthvað af w108 og w114/w115). Eins væri gaman að skoða eitthvað að Benzum í Eyjafirði ef fulltrúar klúbbsins þar vita um eitthvað athyglisvert. Gist í bústað í Kjarnaskóg við Akureyri um nóttina.
Sunnudagur 8. október
Ekið verður frá Akureyri til Reykjavíkur með viðkomu á Þormóðsholti, ef leyfi hjá ábúanda fæst til að skoða kumlin á túninu þar (w110, w108, w114/w115). Hugsanlega verður einnig stoppað í Borganesi ef hægt verður að skoða t.d. 170S Benzann.
Þeir sem eru ákveðnir að mæta eru:
Sveinn
Rúnar
Gunnar Már
Andri
Gunnar Már hefur boðist til að fara á GMG-bifeiðinni, þannig að amk 3 komast með honum. Gert er ráð fyrir að lagt verði í púkk fyrir bensíni. Andri ætlar líklega að koma aðeins seinna um kvöldið á eigin bíl.
Nauðsynlegur ferðabúnaður:
1. Svefnpoki.
2. Bjór. ......(ekki samt einn svefnpoki og tveir bjóar, ...númer eitt og númer tvö