Síða 1 af 4

Ryð 2006

Innsent: 20 Sep 2006, 22:25
frá sveinn
Komin er dagsetning á vísindaferðina norður fyrir heiðar að skoða ryðgaðar Benzdruslur.

Ætlunin er að leggja af stað úr bænum eftir vinnu föstudaginn 6. október og keyra til Akureyrar. Þar er hugmyndin að leigja bústað yfir helgina og hafa þar aðsetur fram á sunnudaginn.

Planið er nokkurnvegin svona:

Föstudagur 6. október
Lagt verður af stað frá Reykjavík til Akureyrar uppúr kl 5 um eftirmiðdaginn. Ekið beina leið til Akureyrar, með kannski einu stoppi til að snæða kvöldmat. Gist í bústað í Kjarnaskóg um nóttina.

Laugardagur 7. október
Dagurinn tekinn snemma og ekið austur í Aðaldal og bílasafnið að Ystafelli skoðað. Þá verður farið að Hafralæk og Benzarnir þar skoðaðir ef leyfi fæst hjá ábúanda (300 Adenauerinn, tveir 220 bílar og eitthvað af w108 og w114/w115). Eins væri gaman að skoða eitthvað að Benzum í Eyjafirði ef fulltrúar klúbbsins þar vita um eitthvað athyglisvert. Gist í bústað í Kjarnaskóg við Akureyri um nóttina.

Sunnudagur 8. október
Ekið verður frá Akureyri til Reykjavíkur með viðkomu á Þormóðsholti, ef leyfi hjá ábúanda fæst til að skoða kumlin á túninu þar (w110, w108, w114/w115). Hugsanlega verður einnig stoppað í Borganesi ef hægt verður að skoða t.d. 170S Benzann.

Þeir sem eru ákveðnir að mæta eru:

Sveinn
Rúnar
Gunnar Már
Andri


Gunnar Már hefur boðist til að fara á GMG-bifeiðinni, þannig að amk 3 komast með honum. Gert er ráð fyrir að lagt verði í púkk fyrir bensíni. Andri ætlar líklega að koma aðeins seinna um kvöldið á eigin bíl.

Nauðsynlegur ferðabúnaður:
1. Svefnpoki.
2. Bjór. ......(ekki samt einn svefnpoki og tveir bjóar, ...númer eitt og númer tvö :wink: :lol: )

Innsent: 21 Sep 2006, 16:40
frá Björgvin Ólafsson
....

Innsent: 21 Sep 2006, 21:23
frá sveinn
Björgvin Ólafsson skrifaði:Frábært, við bræður ferðumst með ykkur á laugardag og bjóðum svo öllum í heimsókn í skúrinn okkar á laugardagskvöldið.

kv
Björgvin
Takk fyrir það! ...það verður nú alveg örugglega gaman að kíkja þangað í heimsókn. 8)

Annars er ég búinn að hringa á Ystafell, Hafralæk og Þormóðsholt og boða komu okkar. Það bar ekki á öðru en að við værum velkomnir á alla þessa staði... :)

Svo var ég að ganga frá bústaðinum og er búinn að borga, þannig að það er bannað að hætta við héðan af... :!:

Þetta er þá hópurinn sem lýst hefur yfir að ætli að taka þátt í þessu:

Sveinn
Rúnar
Gunnar Már
Andri
Ztebbisterinn
Björgvin Ólafsson

Innsent: 21 Sep 2006, 22:39
frá gmg
Þetta er frábært, ég er búinn að fá leyfi hjá frúnni fyrir þessari bíla-bjór helgi 8)

Ég var nú á Akureyri í síðustu viku að vinna fyrir Samherja, fer svo aftur þann 30. að vinna fyrir Bræðurna Ormson og aftur í þennan pakka !!

Þannig að maður fer nú bara að horfa á Akureyri sem manns annað heimili þessa dagana :lol:

Innsent: 21 Sep 2006, 23:39
frá Benz
Þið eruð auðvitað flottastir.Að velja tímann nákvæmlega þegar ég er erlendis. :twisted:

Innsent: 21 Sep 2006, 23:59
frá gmg
Benz skrifaði:Þið eruð auðvitað flottastir.Að velja tímann nákvæmlega þegar ég er erlendis. :twisted:
:roll: Hvað meinarðu ??? :shock:

Innsent: 22 Sep 2006, 00:12
frá Benz
Þú veist vel að ég ætlaði með í þessa ferð ykkar,en er erlendis þessa daga sem þið völduð.Kem ekki heim fyrr en 10/10.Þannig að ég get bara sagt góða skemmtun

Innsent: 26 Sep 2006, 02:51
frá Björgvin Ólafsson
....

Re: Ryð 2006

Innsent: 26 Sep 2006, 08:35
frá GUMMCO
[sveinn"]Komin er dagsetning á vísindaferðina norður fyrir heiðar að skoða ryðgaðar Benzdruslur.

Ef ykkur langar að skoða alvöru ryðgaða Benz,þá er dufthylkið mitt til sýnis í kópavogi :D ekki leita langt yfir skammt :D

Re: Ryð 2006

Innsent: 26 Sep 2006, 09:54
frá Mercedes-Benz
GUMMCO skrifaði:[sveinn"]Komin er dagsetning á vísindaferðina norður fyrir heiðar að skoða ryðgaðar Benzdruslur.

Ef ykkur langar að skoða alvöru ryðgaða Benz,þá er dufthylkið mitt til sýnis í Kópavogi :D ekki leita langt yfir skammt :D

:lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: