#21
Fjarki skrifaði:
HAMAR skrifaði:Toyota Corolla sj.sk. er á 2.3 mill.
Mercedes Benz A150 er á 2.6 mill sj.sk. með elegance/avantgerde pakkanum.

Hvort kaupir maður nýjann Benz eða Toyotu ?

Ég valdi Benz A150 og sé ekki eftir því.
Af tvennu illu þá fer ég milliveginn og fæ mér Avensis eða Accord. Finnst verð á bílum sem eru undir þeim stærðarflokki bara rugl.

Ef við tökum corolluna sem dæmi þá hljótum við að þurfa taka hatchback þá er verðið á svoleiðis bíl 2.1 milla.

En Benzinn er flottur og eflaust vel búinn, hann má eiga það. En mér finnst það oft, ef að maður er að kaupa svona snattara þá þarf maður ekkert að hafa hann ægilega fínann. Jú þetta er bara bíll til að snattast á. Þarf að uppfylla ákveðnar kröfur og málið er dautt. En ef á að nota þennan bíl sem alhliða bíl, innanbæjar, utanbæjar, langferðir og þar eftir götunum er allt í lagi að splæsa aðeins á sig og kannski versla sér eitt stykki Benz.

Góðar stundir

Það er nú reyndar hægt að finna verulega góða notaða Benza fyrir sama verð og nýr Avensis eða Accord.
En ef menn líta á bíl sem tæki eingöngu til að koma manni frá A til B er Avensis málið :wink:
Við sem höfum gaman af því keyra fáum okkur Benz, bara misgamla eftir því sem fjárhagurinn leyfir hverju sinni.


Fyrri bílar:
2002 E320 cdi estate
500E 1992
E220 T 1993
500E 1993
E420 1995
A160 1999

#22
Ég ætlaði nú aldeilis að vera skynsamur svona einu sinni í bílamálum og keypti mér glænýjann Toyota Avensis ´98 módelið . Hélt að þarna væri ég kominn með áræðanlegan og traustan bíl sem væri góður í endursölu.
En svo bregðast krosstré sem herðatré, á fyrsta ári þurfti blessuð Toyotan að fara 12 sinnum á verkstæði. Það bilaði allt sem getur bilað í einum bíl á fyrsta ári,
bremsur ónytar eftir 500 km.
bremsur aftur ónýtar eftir 900 km.
2 tegundir af innréttingu voru í bílnum,
hliðarlistar svignuðu í kulda þannig að ekki var hægt að opna framhurðir til fulls,
hliðarlistar brottnuðu af í frosti,
demparar frusu fastir,
hurðar silender snérist bara í hringi án þess að opna hurð,
ofl. ofl.

Að 2 árum liðnum vorum við búin að fá okkur fullsödd af þessum bíl og áhváðum að selja. Bíllinn var auglýstur í DV. helgi eftir helgi, stóð hjá umboðinu en ekkert gekk.
Það tókst loks eftir 5 mánuði og 900.000 kr. afföll (vinnu félagi keypti skrjóðinn og hefur ekki talað við mig síðan )
Keiptum bílinn á 1.950.000. og urðum að láta hann á yfirtöku á láni 1.020.000
Bíllinn var þá 25 mánaða gamall
Þannig að á mitt heimili kemur aldrei aftur Toyota
Sigurður HAMAR Pétursson 897-5576
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
BMW 225xe

#23
Það er nú reyndar hægt að finna verulega góða notaða Benza fyrir sama verð og nýr Avensis eða Accord.
En ef menn líta á bíl sem tæki eingöngu til að koma manni frá A til B er Avensis málið
Við sem höfum gaman af því keyra fáum okkur Benz, bara misgamla eftir því sem fjárhagurinn leyfir hverju sinni.
Það er ekkert verið að tala um það. Gæinn sagði að Benzinn hafi kostað 300 kalli meira en Corolla. En 300 kall í viðbót við corolla, þá sama verð á Benzanum þá getur fengið Avensis, Accord og fullt af bílum. Og hann var að kaupa sér nýjann bíl. Og A Benz getur varla verið það merkilegur að hann sé eitthvað mikið meira en a-b bíll. En fyrir A Benz þá gætirðu fengið eitthvað af ofangreindu og miklu fleirra.

Veit að það er hægt að fá fína notaða Benza fyrir þann pening en hann var að kaupa sér nýjann.

Og auðvitað lenda menn í ýmsu þegar þeir kaupa sér bíla. Og Toyota er ekkert undanskilið því. Og þú hefur verið svoldið óheppinn með þitt eintak eins og margir lenda í á öllum bíltegundum.

Og allt sem þú telur upp í þessum Avensis voru gallar, nema kannski silendirinn, þekki það ekki. En gallar eru í öllum bílum, sérstaklega þar sem hann var að koma nýr. Og þessir gallar tengdust bílum sem settir voru saman í Bretlandi.

Þessir Avensis bílar hafa haldið verðinu gríðarlega vel. Þetta eru bílara sem hafa alltaf verið að seljast á yfirverði nema núna um daginnn, kom smá tímabil en svo hafa þeir hækkað aftur núna. Og það að Avensis seljist ekki er eitthvað skrítið. Þetta eru alltaf bílar sem hafa selst um leið og aldrei verið til bílar fyrir þá sem eru að leita að notuðum. Rifist um þá.

En sumir eru heppnir og aðrir óheppnir. Það gengur bara svoleiðis.

Góðar stundir
Kristján

#24
Mercedes-Benz skrifaði:Ég er alveg sammála þessu með verðið á A bílnum. Það er bara alls ekki hátt miðað við aðra smábíla á markaðnum. Málið er að þetta er ótrúlega mikill bíll þrátt fyrir að vera ekki stór.

Ég er allavega mjög ánægður með hann, enda er þetta bíll sem hentar mér mjög vel og er mjög sniðugur fyrir þá notkun ökutækis sem mér fylgir, þó svo að það séu vissulega til meiri glansvagnar frá Mercedes til að aka á, eins og C43 svo dæmi sé tekið. Sá bíll var hinsvega ekki eins praktískur bíll þó svo að það sé skemmtilegasti bíll sem ég hef átt.

Það er bara eitt við þennan nýja bíl minn sem ég hefði viljað hafa öðruvísi, en ég bara nennti ekki að bíða í 3 mánuði eftir að fá A200 CDI dísil.
Er 3 mánaðar bið eftir A bílum ef maður er með séróskir um búnað ?
Mig langar svo í A170 Elegance, sjálfskiptann með leðri.
Sigurður HAMAR Pétursson 897-5576
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
BMW 225xe

#25
HAMAR skrifaði:Er 3 mánaðar bið eftir A bílum ef maður er með séróskir um búnað ?
Mig langar svo í A170 Elegance, sjálfskiptann með leðri.
Það gæti teygst í að vera það já. Ég átti allavega að fá að bíða í þennan tíma eftir dísil.. :?
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#26
Mercedes-Benz skrifaði:
Það gæti teygst í að vera það já. Ég átti allavega að fá að bíða í þennan tíma eftir dísil.. :?
Af hverju vildirðu dísel í A Benz? Eyðir ekki bensínvélin hvort sem er mjög litlu og svo er díselbíllinn væntanlega dýrari, hávaðasamari og leiðinlegri í akstri.
Fyrri bílar:
2002 E320 cdi estate
500E 1992
E220 T 1993
500E 1993
E420 1995
A160 1999

#27
E 220T skrifaði:
Mercedes-Benz skrifaði:
Það gæti teygst í að vera það já. Ég átti allavega að fá að bíða í þennan tíma eftir dísil.. :?
Af hverju vildirðu dísel í A Benz? Eyðir ekki bensínvélin hvort sem er mjög litlu og svo er díselbíllinn væntanlega dýrari, hávaðasamari og leiðinlegri í akstri.
Þarna er ég ekki sammála þér. Mér finnst dísilmurrið mjög notarlegt í þessum A-bílum og leiðinlegri í akstri eru þeir alls ekki, allavega ekki beinskiptir. Það sem ég er að sækjast eftir er togkraftur dísilvélarinnar sem er 300Nm á 1600-2600 Rpm í A-200CDI, á móti þeim 155Nm á 3500-4000 Rpm í A-170.

Það gefur bílnum mikið meira afl á lágum snúnig og lengra sviði. Þannig þarf ekki alltaf að verja að þenja bílinn til að hann vinni eitthvað. Ef verið er að þenja bílinn út og suður eyðir hann bara miklu og þar sem ég er svona "þungfótur" að þá finnst mér nú þessi A-170 bíll vara vera nokkuð iðinn við að eyða fyrir mér bensíninu, allavega ef mark er takandi á eyðslumæli bílsins.

Dísillinn er líka 140 hross á meðan 170 bílinn er 116hp. A200 dísilbílinn er líka hægt a kubba svolitið upp, eða í 190 hross og 350 Nm ef með vill. Þess má líka geta að ég er svolítið ginkeyptur á aukabúnað og er kanski ekki sá sem er að spara um of þegar ef kaupi mér nýjan bíl. Ég vil hafa svolítið af gromsi í þessum bílum og ætlaði þá að panta aukahluti fyrir svona 3-400 kall til að gera bílinn skemmtilegri.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#29
lhg skrifaði:
Mercedes-Benz skrifaði:Mér finnst dísilmurrið mjög notarlegt í þessum A-bílum
:shock:

Það getur nú ekki verið að traktorhljóðið sé betra en bensínhljóðið í þessum bílum??
Þetta getur sjálfsagt verið persónubundið. Ég hef ferðast erlendis á A Benz 170 CDI sjálfskiptum bílaleigubíl (árgerð 2000) og kom mér það verulega á óvart hvað lítið hljóð heyrðist frá vélinni. Hún er jú e.t.v. örlítið háværari en bensínvélin en samt alveg fullnægjandi (malaði eins og köttur :lol: ). Meira segja var aflið til aksturs á hraðbrautum alveg fullnægjandi fyrir bíl af þessari stærð, og hröðunin kom mér verulega á óvart. Hins fannst mér að bílnum þætti bílnum "sopinn góður" þegar maður var kominn á háann snúning (140-160 km hraða) en það var eins og að hann "framleiddi diesel" á lægri snúningnum :lol:

Mun skipta um bíl á næsta ári og kemur vel til greina að fá sér diesel A Benz sparibauk 8)

Ég hélt nú að bíllinn hans Rúnars væri dieselbíll þar sem hann er A 170 hehe, hef augljóslega ekki fylgst nægjanlega vel með breytingunum á nýju A línunni :?
Benedikt Hans Rúnarsson

#30
Benz skrifaði:
lhg skrifaði:
Mercedes-Benz skrifaði:Mér finnst dísilmurrið mjög notarlegt í þessum A-bílum
:shock:

Það getur nú ekki verið að traktorhljóðið sé betra en bensínhljóðið í þessum bílum??
Þetta getur sjálfsagt verið persónubundið. Ég hélt nú að bíllinn hans Rúnars væri dieselbíll þar sem hann er A 170 hehe, hef augljóslega ekki fylgst nægjanlega vel með breytingunum á nýju A línunni :?
Já eflaust er þetta persónubundið eins og allt annað.

En er ekki bíllinn hans Rúnars dísel? Mér sýnist það m.v. þráðinn :wink:
Mercedes Benz E500 2003 08/02

Mercedes Benz 400E 1993

http://members.cardomain.com/lydur