#2
Þetta fyrirbæri er tilraunabíll af Pagoda bílnum teiknaður af hinum stórskrítna Pininfarina sem ég held að hafi verið Ítali. Þessi hugmyndabíll vara bara til í einu eintaki og var sýndur fyrst árið 1964. Hann var aldrei framleiddur sem von er. Ég held líka að Mercedes-Benz hafi einungis stuðst við hugmyndir frá Pinnanum en aldrei smíðað bíl sem hann hafi hannað.
Að mínu mati eru ljótustu tilraunabílar sem maður sér myndir af frá Mercedes-Benz teiknaðar af honum.
Hér skulum við líta á nokkur dæmi.
[img]http://www.stjarna.is/images/Sk0052400.jpg[/img]
Pininfarina hugmyndabíll af 300S frá árinu 1955
[img]http://www.stjarna.is/images/Sk0053400.jpg[/img]
Pininfarina hugmyndabíll af 300b frá árinu 1956
[img]http://www.stjarna.is/images/Sk0050400.jpg[/img]
Aftursvipurinn á Pininfarina Pagoda bílnum frá 1964
[img]http://www.stjarna.is/images/Sk0051400.jpg[/img]
Pininfarina hugmyndabíll frá árinu 1970 byggður á 300SEL 6,3.
Nú létu vinir okkar í Stuttgart Pinnann róa fyrir fullt og allt.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#3
Mér finnst þessi frá '55 bara flottur en hinir eru alveg nógu ljótir til að láta hann fara
Volvo XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
Alpina B3 biturbo 2008 #101

#6
Benzboy skrifaði:Mér finnst þessi frá '55 bara flottur en hinir eru alveg nógu ljótir til að láta hann fara
Ég er alveg sammála þér með 55 300 bílinn. Hann er virkilega fallega teiknaður og glæsilegur bíll. Það er svolítil synd að þetta skyldi ekki framleitt. Það er þó mikið guðsmildi að hinir bílarnir urðu bara hugmyndabílar.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#7
Mercedes-Benz skrifaði: Það er þó mikið guðsmildi að hinir bílarnir urðu bara hugmyndabílar.
Guðsmildi eða bara þýsk nákvæmni og smekkvísi
Volvo XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
Alpina B3 biturbo 2008 #101

#8
300 '55 bíllinn minnir mig dálítið mikið á 220SE coupe (ponton) bílinn frá sama tíma. Þessi bíll hefur sjálfsagt verið dálítið stærri og veglegri, en hryllilega eru framljósin samt ljót.

Reyndar er það með svona hugmyndabíla að þeir eru alltaf svolítið ýktari en það sem endanlega fer í framleiðslu. Tilgangur hönnuða er að koma með hugmyndirnar, síðan er bíllinn alltaf tekinn fyrir og endurhannaður út frá praktísku og tæknilegu sjónarmiði, kostanaði og öðru. Þessi Pininfarina Pagota er að mér sýnist töluvert líkari upphaflegu teikningu Paul Bracq af bílnum en því sem fór í framleiðslu og við þekkjum (að undanskyldu þakinu sem var náttúrulega upphafið af nafninu sjálfu). Ef Pininfarina Pagotan eða hinir bílarnir hefðu farið í framleiðslu, þá hefðu þeir eflaust verið dálítið öðruvísi í útliti. Sergio Pinin Farina er mjög virtur ítalskur hönnuður sem margir bílaframleiðendur virðast hafa leitað í smiðju til (Ferrari, Alfa Romeo, Lancia), sem og til Paul Bracq sem teiknaði fyrir bæði Peugeot og BMW.
Sveinn

#10
sveinn skrifaði:Þó að þetta sé kannski ekki Pininfarina Pagota þá væri ég til í að prófa hann;

280SL 6.3

Þetta er örugglga svolítið tryllt ökutæki.
Engin smá vinna sem hefur verið lögð í þetta en já þetta er örugglega ansi skemmtilegt ride
Volvo XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
Alpina B3 biturbo 2008 #101