300 '55 bíllinn minnir mig dálítið mikið á 220SE coupe (ponton) bílinn frá sama tíma. Þessi bíll hefur sjálfsagt verið dálítið stærri og veglegri, en hryllilega eru framljósin samt ljót.
Reyndar er það með svona hugmyndabíla að þeir eru alltaf svolítið ýktari en það sem endanlega fer í framleiðslu. Tilgangur hönnuða er að koma með hugmyndirnar, síðan er bíllinn alltaf tekinn fyrir og endurhannaður út frá praktísku og tæknilegu sjónarmiði, kostanaði og öðru. Þessi Pininfarina Pagota er að mér sýnist töluvert líkari upphaflegu teikningu Paul Bracq af bílnum en því sem fór í framleiðslu og við þekkjum (að undanskyldu þakinu sem var náttúrulega upphafið af nafninu sjálfu). Ef Pininfarina Pagotan eða hinir bílarnir hefðu farið í framleiðslu, þá hefðu þeir eflaust verið dálítið öðruvísi í útliti.
Sergio Pinin Farina er mjög virtur ítalskur hönnuður sem margir bílaframleiðendur virðast hafa leitað í smiðju til (Ferrari, Alfa Romeo, Lancia), sem og til Paul Bracq sem teiknaði fyrir bæði Peugeot og BMW.