Kaup á Mercedez Benz

#1
Sælir spjallverjar!
Ég er undanfarna daga búinn að vera að skoða Benz bíla og er aðallega að horfa á E-Class.
Það sem ég hef aðallega verið að spá er hvort sérfróðir menn hér inná síðunni hafi eitthverjar upplýsingar til að deila með mér um hinar ýmsu týpur af E-Classinum, hvað beri að varast, hvaða týpur eru betri og verri hvað varðar endingu, eða hvort þetta sé allt bara voða svipað en það fari aðallega eftir umgengni.

Ég hef heyrt eitthversstaðar að maður eigi að passa sig á 1998-2003 árgerðum því að á þeim tíma hafi gæði Benz fallið verulega og að mikil véla og rafmagnsvandræði fylgi þessum bílum. Er eitthvað til í þessu?

Sem dæmi var ég að skoða E-Class 240 061 sem er 2002 árgerð og keyrður 175þús. Bíllinn virðist mjög heill og mér skilst að hann hafi verið að koma vel út í skoðunum og annað, en mér finnst ég samt knúinn til að biðja um ráðleggingar frá ykkur hér á spjallinu.

Hvaða týpur myndu þið aðallega horfa á og hvaða týpur myndu þið forðast? Ég er þá ekkert endilega að hugsa um E-Class. Ég set verðþakið í 2milljónirnar, þó svo að hundraðþúsundkall til eða frá sé ekkert endilega tiltökumál.


Re: Kaup á Mercedez Benz

#3
Tek undir með Hjalta. En ef þessi E240 sem ekki er ekinn meira en 175000 km er óryðgaður og með góða þjónustubók, þá væri ég óhræddur við að kaupa bílinn í þínum sporum. Ryðið er það sem þarf að kíkja fyrst og fremst eftir á þessum árgerðum. :wink:
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: Kaup á Mercedez Benz

#4
Kom ekki W211 árið 2002 fyrst á markað í Evrópu. Wikipedia

Það er til bæði 210.061 og 211.061. E240 er með V6 vél. Ég myndi nú svipast um eftir W211 bíl og jafnvel frekar E320 ef menn eru ekki mikið að velta eyðslunni fyrir sér. Munar ca. 3 lítrum innan bæjar og 1,5 utanbæjar samkvæmt http://mercefreaken.com

Mín reynsla er að þessar vélar eyða jafnvel minna en er gefið upp þar. Kannski bara aksturlagið hjá mér.

Svo er spurning ef það er W211 hvort hann er með gorma- eða loftpúðafjöðrun. Ég myndi velja loftðúpana þó þeir geti verið kostnaðarsamir ef þeir klikka.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Kaup á Mercedez Benz

#5
sæll

ég er á w211 benz, reyndar með v8 5 lítra mótor, en bíllinn sjálfur er dásamlegur að öllu leyti !

ég var eitt sinn að spá í e240 og var varaður við þeim vegna eitthvers galla í kringum mótor og rafkerfis í kringum mótor minnir mig.

ég myndi segja að þú ættir að geta fundið fínan e 200 kompressor w211 í kringum tvær og eitthvað undir tveimur jafnvel og ég sjálfur myndi fá mér svoleiðis ef ég vildi ekki frekar stórann mótor eins og er í bílnum hjá mér :)

og ég held að bílarnir með minni mótorunum þ.e. e200 og e240 og dísel bílarnir, eru ekki með loftpúðunum (las það eitthverstaðar svo getur vel verið vitlaust)

en minn er með loftpúðunum og ég er að elska það :D get hækkað og lækkað , og stillt stífleikann í dempurunum!

og passaðu þig á því að hlusta ekki of mikið á suma, það eru ekki allir bílar af eitthverjum sérstökum árgerðum ónýtir úr ryði, ef þú sérð bíl sem þér líst á og er af þessum árgerðum þá skoðaðu hann og láttu söluskoða hann fyrir þig af eitthverju góðu verkstæði (mæli með bíla-doktornum) og sjáðu þá hvort hann er svona ónýtur eins og eitthver sem hefur aldrei séð þann bíl segir að hann sé ;)
Þorvaldur Björn Matthíasson

Mercedes Benz E55 kompressor 05 ÞBM

Re: Kaup á Mercedez Benz

#6
Mér hefur þótt W210 koma ansi illa út, þeir ryðga rosalega og eru nú seint taldir fallegir.

W211 hinsvegar hef ég líka prófað og þú getur fengið slíkann á þessu verði, það þarf bara að láta skoða þetta allt vel hvora týpuna sem þú ákveður að kaupa þér, en mæli með W211 á hverjum degi fram yfir W210.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Kaup á Mercedez Benz

#7
já þeir hafa verið slæmir margir hverjir w210 bílarnir, hef átt tvo w210, á öðrum var ekki ryðblettur 95 árgerð, en hinn var aðeins farinn að láta sjá í kringum skottcylenderinn öðrum brettaboganum að aftan.
Þorvaldur Björn Matthíasson

Mercedes Benz E55 kompressor 05 ÞBM