Kaup á Mercedez Benz
Innsent: 17 Feb 2014, 19:35
Sælir spjallverjar!
Ég er undanfarna daga búinn að vera að skoða Benz bíla og er aðallega að horfa á E-Class.
Það sem ég hef aðallega verið að spá er hvort sérfróðir menn hér inná síðunni hafi eitthverjar upplýsingar til að deila með mér um hinar ýmsu týpur af E-Classinum, hvað beri að varast, hvaða týpur eru betri og verri hvað varðar endingu, eða hvort þetta sé allt bara voða svipað en það fari aðallega eftir umgengni.
Ég hef heyrt eitthversstaðar að maður eigi að passa sig á 1998-2003 árgerðum því að á þeim tíma hafi gæði Benz fallið verulega og að mikil véla og rafmagnsvandræði fylgi þessum bílum. Er eitthvað til í þessu?
Sem dæmi var ég að skoða E-Class 240 061 sem er 2002 árgerð og keyrður 175þús. Bíllinn virðist mjög heill og mér skilst að hann hafi verið að koma vel út í skoðunum og annað, en mér finnst ég samt knúinn til að biðja um ráðleggingar frá ykkur hér á spjallinu.
Hvaða týpur myndu þið aðallega horfa á og hvaða týpur myndu þið forðast? Ég er þá ekkert endilega að hugsa um E-Class. Ég set verðþakið í 2milljónirnar, þó svo að hundraðþúsundkall til eða frá sé ekkert endilega tiltökumál.