Sælir
Er mikið að spá í ML (W164) þessa dagana og hef verið að horfa á 2006 árgerðina og þá bensínbílana 350 eða 500 (cdi er svo asskoti dýr) og nú spyr ég:
Er stór munur á 350 og 500?
Eru lakkgallar á þessum bílum?
Hef heyrt að það hafi verið eitthvað um rafmagnsbilanir er það eitthvað issue?
Hvað ber helst að varast?
Re: ML (W164) hugleiðingar
#2Já það hefur verið vart við lakkgalla í þessum bílum, en samt ekki eins stórvægilegum eins og forverum hans.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019
GSM:6990019
Re: ML (W164) hugleiðingar
#3Systir mín er búin að eiga ML350 W164 og er MJÖG ánægð með hann.
Ekkert stórvægilegt/óvenjulegt komið upp á.
500 bíllinn eyðir meira bensíni innanbæjar og í blönduðum akstri en ekki mikið meira á langkeyrslunni skv. http://www.mercefreaken.com" onclick="window.open(this.href);return false;

Benedikt Hans Rúnarsson
Re: ML (W164) hugleiðingar
#4Þessi er sagður hafa farið í innköllun bæði á vél og boddy.
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1
Vitiði hvað það er sem þarf að laga í vélinni?
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1
Vitiði hvað það er sem þarf að laga í vélinni?
Re: ML (W164) hugleiðingar
#5350 er með einhverja neikvæðni varðandi mótora,, þekki það ekki alveg
500 er topp græja
það er claim á ryð í hurðum osfrv,,
loftpúðafjöðrunin er tómt vesen,,kostar bilað mikið ef klikkar sem gerist of oft
500 er topp græja
það er claim á ryð í hurðum osfrv,,
loftpúðafjöðrunin er tómt vesen,,kostar bilað mikið ef klikkar sem gerist of oft
Re: ML (W164) hugleiðingar
#6Ég á ML500 2006 á gormafjöðrun og er mjög ánægður með hann. Bensínbílarnir hafa verið að koma alveg mjög vel út fyrir utan eitthver kambásflýtavandræði í ML350. Það sem þarf að passa með þessa bíla er að skipta frekar oftar um olíur á driflínu og stýri en en MB gefur upp og setja Prolong bætiefni í allr olíur á þessu. Það sannast með þessum bílum að aldrei er of oft skipt um oliur. Mér hefur sýnst að það sem sé að bila alvarlega í þessum bílum kemur til vegna þess að það skortir upp á olíuskipti. Varðandi ryðvandamál að þá hafa komið upp vandamál í þeim. Ég mæli með því að láta ryðverja þessa bíla í öll holrúm með holrúmavaxi því að það virðist nánast stöðva vandamálið. Svo þarf bara að fylgjast með lakkinu á þessum bílum eins og öllum gömlum bílum. Gerum okkur grein fyrir að 2006 árgerð er að verða 8 ára gamall bíll og svo gamlir bílar af öðrum tegundum eru að byrja að fara í pressuna.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...
Re: ML (W164) hugleiðingar
#7Ég þakka fyrir þessar upplýsingar.
En varðandi dísel bílana, getiði sagt mér hver er munurinn á 280cdi og 320cdi? Er þetta hugbúnaður eða er minni túrbína í 280cdi bílnum?
En varðandi dísel bílana, getiði sagt mér hver er munurinn á 280cdi og 320cdi? Er þetta hugbúnaður eða er minni túrbína í 280cdi bílnum?