Re: ML (W164) hugleiðingar

#6
Ég á ML500 2006 á gormafjöðrun og er mjög ánægður með hann. Bensínbílarnir hafa verið að koma alveg mjög vel út fyrir utan eitthver kambásflýtavandræði í ML350. Það sem þarf að passa með þessa bíla er að skipta frekar oftar um olíur á driflínu og stýri en en MB gefur upp og setja Prolong bætiefni í allr olíur á þessu. Það sannast með þessum bílum að aldrei er of oft skipt um oliur. Mér hefur sýnst að það sem sé að bila alvarlega í þessum bílum kemur til vegna þess að það skortir upp á olíuskipti. Varðandi ryðvandamál að þá hafa komið upp vandamál í þeim. Ég mæli með því að láta ryðverja þessa bíla í öll holrúm með holrúmavaxi því að það virðist nánast stöðva vandamálið. Svo þarf bara að fylgjast með lakkinu á þessum bílum eins og öllum gömlum bílum. Gerum okkur grein fyrir að 2006 árgerð er að verða 8 ára gamall bíll og svo gamlir bílar af öðrum tegundum eru að byrja að fara í pressuna.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)
cron