Re: B Class - NGT bíll - hugmyndir

#21
HAMAR skrifaði:Já þessar mælingar fara náttúrulega allar fram við mjög óeðlilegar aðstæður.
Ég held að það muni ekki nema 3gr. af co2 á milli bílanna NGT í hag
en cdi er 270.000kr. dýrari.

Fer ekki NGT 1000km. á gasi + bensíni?
En metangasið er náttúrulega (í dag) helmingi ódýrari aflgjafi.
Gasið virðist vera helmingi ódýrara í evrópu, ef Steingrímur skattleggur þetta í drasl þá fer ég :lol:

Djöfulli er orðið súrt að búa hérna, bílaáhugamál er t.d. orðin nánast vonlaus.

Ég veit ekki alveg hvað NGT bíllinn er að fara, meira skiptir að hann fari sem lengst á gasinu. Ég t.d. set orðið bensín á jeppann á 1-2 mánaða fresti, samt er hann í töluverðri notkun.


G500 - 5.0L '03 Metanbreyttur
CARRERA4 911 964 - 3,6L '91
CHAPPARAL SSI 180 '04

Re: B Class - NGT bíll - hugmyndir

#22
Ég er nefnilega svolítið hræddur um það að þegar metan bílar verða orðnir algengari á götunni þá verði settur skattur á metanið
alveg eins og bensín og dísil þannig að verðið verði alveg það sama, það er voðalega týpiskt íslenskt eitthvað.
Það má nefnilega enginn borga minna en næsti maður í skatta :(
Sigurður HAMAR Pétursson 897-5576
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
BMW 225xe

Re: B Class - NGT bíll - hugmyndir

#24
Thrullerinn skrifaði:
HAMAR skrifaði:Já þessar mælingar fara náttúrulega allar fram við mjög óeðlilegar aðstæður.
Ég held að það muni ekki nema 3gr. af co2 á milli bílanna NGT í hag
en cdi er 270.000kr. dýrari.

Fer ekki NGT 1000km. á gasi + bensíni?
En metangasið er náttúrulega (í dag) helmingi ódýrari aflgjafi.
Gasið virðist vera helmingi ódýrara í evrópu, ef Steingrímur skattleggur þetta í drasl þá fer ég :lol:

Djöfulli er orðið súrt að búa hérna, bílaáhugamál er t.d. orðin nánast vonlaus.

Ég veit ekki alveg hvað NGT bíllinn er að fara, meira skiptir að hann fari sem lengst á gasinu. Ég t.d. set orðið bensín á jeppann á 1-2 mánaða fresti, samt er hann í töluverðri notkun.
Þetta er því miður orðin staðreynd. Þá á gjörsamlega að ganga fram af okkur bíleigendum með því að hækka eldsneytisverðið út í eitt. :evil: Það er örugglega ekki langt að bíða að Skattgrímur leggi extra álögur á metanið. :evil: Veit þó um nokkra diesel-bíla eigendur sem settu steinolíu á bílana hjá sér í þessari viku - í kjölfar hækkanna - og það í fyrsta sinn. Enda eru þeir alveg búnir að fá nóg af þessum stöðugu hækkunum eins og fleiri. Það verður fróðlegt að fylgjast með gangi mála hjá þeim.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: B Class - NGT bíll - hugmyndir

#25
Sælir piltar.


Ég sat eitt sinn fund með mjög mörgum embættismönnum þar sem farið var yfir eldsneiti framtíðarinnar og skattlagningu á því. Lögfræðingar fjármálaráðuneitis töluðu bara hreint út, "ríkið tekur alltaf sitt, en tímabundnar gulrætur geta gengið í einhvern tíma". Metanið verður skattað fyrir rest.

Hvað B bílinn varðar, þá verður nýr B kynntur á IAA næstkomandi september og hann á að vera kominn í sölu hjá þýskum söluaðilum 10 nóv á þessu ári. Ég ætla að endurnýja minn, en bíð að sjálfsögðu eftir nýja bílnum.

Re: B Class - NGT bíll - hugmyndir

#27
Sú gamla keypti sér NGT bíl og fær hann í apríl.

Skal viðurkenna að ég fór aldrei að prófa passatinn :oops: málið var að hann var of dýr miðað við budgettið.

Þeir hjá Öskju klúðruðu nú aðeins pöntuninni en það var settlað.
Þá er bara að bíða, pósta einhverjum myndum. :Drivermanual:
G500 - 5.0L '03 Metanbreyttur
CARRERA4 911 964 - 3,6L '91
CHAPPARAL SSI 180 '04

Re: B Class - NGT bíll - hugmyndir

#28
HAMAR skrifaði:Hér er smá samanburður á B180 cdi og B180 NGT varðandi eyðsluna

http://www.youtube.com/watch?v=SAH8_mjN7zU" onclick="window.open(this.href);return false;

og þessa frétt sá maður í dag :(

http://mbl.is/frettir/innlent/2011/02/2 ... 120_kr_nm/" onclick="window.open(this.href);return false;
Já metanið hækkar..

Er ekki alveg að skilja þýskuna en Dísillinn eyðir miklu minna í lítrum talið er það ekki?
Samt myndu þeir velja metanbílinn?
G500 - 5.0L '03 Metanbreyttur
CARRERA4 911 964 - 3,6L '91
CHAPPARAL SSI 180 '04

Re: B Class - NGT bíll - hugmyndir

#30
sælir

ég ræddi við fólk nýlega sem hafði keypt metan B class þau vildu vera voða græn og allt það núna ca ári seinna ætla þau að selja bílinn, þau komust að því að áfyllinga stöðvarnar sem var búið að lofa eru ekki það margar en þær áttu að vera komnar 4 eða 5 en eru bara eiginlega 1 1/2 , þau búa á nesinu en dælan er uppá höfða og önnur eiginlega falin í Hafnarfirði og hún virkar ekki sem skildi ,heldur ekki uppi þrysting þannig að þau ná ekki að fylla alveg bílinn, málið er það að það var búið að vera leggja slatta af pening í að þróa metan hér heima en þegar nýr borgastjóri tók við þá var þetta með því fyrst sem hann skar niður þannig að þeir ná ekki að framleiða það mikið , þannig að ef allir færu í metan þá mundi það enga veginn anna eftirspurn. Metan bíll eyðir alveg því sama og hann er á bensíninu en nátturulega er metanið ódýrar eins og er en hversu lengi????
230ce árg 1990 seldur
200e árg 1991 seldur
300ce24 árg 1991 seldur :(
190e árg 1988 seldur
cron