B Class - NGT bíll - hugmyndir

#1
Sælir félagar,

Nú er ég að öllum líkindum að fara að versla svona bíl fyrir mömmu, nýjan úr kassanum. Ath. þetta er metan..

Verðið á honum er í rúmum fjórum, ætla að reyna að fá hana til að taka Xenon og krómpakka. Hinsvegar er nýr passat kominn með nýju útliti sem við ætlum að skoða, hann er ívið dýrari og aðeins stærri.

Endilega kommentið ef þið hafið ábendingar um bílinn..


G500 - 5.0L '03 Metanbreyttur
CARRERA4 911 964 - 3,6L '91
CHAPPARAL SSI 180 '04

Re: B Class - NGT bíll - hugmyndir

#2
Doktorinn var akkúrat að tala um það á síðustu samkomu klúbbsins að nýji A og B klassinn hjá Benz væru þeir bílar sem eru að koma best út hjá Benz í dag.

Sjálfum fannst mér B class skelfilega ljótur þegar ég sá hann fyrst en hann venst bara ansi vel ;)

Passat er þó nokkuð stærri bíll ekki satt?
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: B Class - NGT bíll - hugmyndir

#3
Benni skrifaði:Doktorinn var akkúrat að tala um það á síðustu samkomu klúbbsins að nýji A og B klassinn hjá Benz væru þeir bílar sem eru að koma best út hjá Benz í dag.

Sjálfum fannst mér B class skelfilega ljótur þegar ég sá hann fyrst en hann venst bara ansi vel ;)

Passat er þó nokkuð stærri bíll ekki satt?
Ég ætla að prófa þá báða í vikunni..

Hér er linkur á passatinn.
http://www.worldcarfans.com/11010142900 ... wphotos#21

Natural gas is stored in three tanks under the rear half of the car, with a total capacity of 22kg. A 31L gas tank is also aboard, giving the Passat EcoFuel a total range of 500 miles. The EcoFuel sedan consumes 4.5kg of natural gas every 100 km, which translates roughly into 52 mpg.

Reyndar ekkert sérlega hrifinn af þessu
..both a supercharger and a turbocharger.. á 1,4l vélinni, myndi halda að svona lagað þyrfti meira viðhald seinna meir.

800 km drægni á bensín plús metan

[img]http://www.zercustoms.com/news/images/V ... ssat-1.jpg[/img]


Benzinn getur geymt 16kg af gasi, 5 kg minna en passatinn
Uppgefinn drægni á gasinu er 100km per 4,9 kg af gasi og miðað við 16Kg rými þá ætti það að duga í 300 km. En af fenginni reynslu þá eru uppgefnar tölur alltaf óttaleg vitleysa. Lít meira í geymslurýmið 16 kg. sem er i raun ekki mikið.
..total range in excess of 620 miles.. sem eru um 1000 km.
Hinsvegar er hann með miklu meira pláss í bensínið
Car Fuel tank capacity: 54.0 litres

Merkileg staðreynd
LCA (life cycle analysis) for NGT

A NG power B-Class traveling 93,000 miles shows an overall CO2 emissions decrease of 20%, NOx emissions are 11% lower and CO is 54% below the comparable gasoline model over the vehicle's lifecycle using NG. The higher CO2 cost of the manufacturing the B 170 NGT is balanced out after a distance of only 10,750 miles.

Samt sem áður vil ég fá LED dótið í stuðarana(nýja lúkkið) eins og allir nýju e klassarnir, var í Stokkhólmi í sumar og audi og benz skörtuðu margir þessum ljósum, fannst þetta svolítið móðins..

[img]http://www.silverstarmercedes.ca/w/file ... 0-2011.jpg[/img]

[img]http://www.orangewheels.co.uk/model_ima ... /19935.jpg[/img]

[img]http://www.product-reviews.net/wp-conte ... -class.jpg[/img]

Held að skynamlegast sé að prófa þessa bíla
G500 - 5.0L '03 Metanbreyttur
CARRERA4 911 964 - 3,6L '91
CHAPPARAL SSI 180 '04

Re: B Class - NGT bíll - hugmyndir

#4
B classinn er bara flottur á þessum myndum ;)

Hitt er að ef að notandinn er eldri borgari (eða stefnir í það) þá getur vel verið að B-class henti betur þar sem það er mjög auðvelt að setjast upp í þá.
Finn það hjá foreldrum mínum að bara það að hvernig maður sest inn í bílinn, og auðvitað kemst aftur út úr honum, skiptir þau gríðarlega miklu máli.
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: B Class - NGT bíll - hugmyndir

#5
Mér finnst facelift B bíll miklu fallegri en sá eldri. Þetta eru bílar sem eru að koma mjög vel út í rekstri. Passat-inn gæti hugsanlega sýnst vera meiri bíll við fyrstu sýn, en það er ótrúlegt hvað þessir B og A bílar eru stórir bílar, enda A200CDI bílinn minn rúm 1300 kg á þyngd, sem er þyngra en Toyota Avensis, og svo eru menn stundum að kalla A bílinn minn Stjörnu-Yaris.. !!!!!! Fávitar :lol: :lol: :lol:
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: B Class - NGT bíll - hugmyndir

#6
Jæja fór og prufaði bílinn í dag, ekki beinlínis kraftmesta kvikindið í bransanum en dugar alveg fínt.

Í heildina þá gekk þetta vel en bíllinn var sjálfskiptur og eins og hann væri ekki búinn að skipta sér niður 1sta þegar maður tók af stað á gatnamótum. Þ.e. þegar græna ljósið kom og maður gaf í þá eftir hálfa sek. þá skipti hann í fyrsta og af stað, hálf furðulegt.

Eitthvað fannst mér baksýnisspegillinn alltaf fyrir.

Að fara í hann og úr var voða þægilegt, sbr. umræðuna hér ofar.

Skottið er þokkalegt, nokkuð auðvelt að fella sætin niður.

Í hnotskurn er þetta bíll sem eyðir litlu, benz og ágætis pláss fyrir alla. Ef ég ber þetta t.d. við ásinn í BMW þá er þetta endalaus winner. Plássið aftur í er ágætt.

Síðan var sölumaðurin að benda á PTC úbúnað í NGT bíl, sem ég hafði heyrt af, forhitari á metanið, eitthvað sem ég hafði ekki hugmynd um og ætla að gúggla, bíllinn á að starta á metaninu, sem mér finnst áhugavert því það þarf töluvert meiri hita í að brenna það en bensínið..

Af minni reynslu á benz þá eru þetta afskaplega vandaðir bílar. En næst er að skoða passatinn.

Finnst samt skondið að staðalbúnaður á benz er enn stálfelgur og koppar.
G500 - 5.0L '03 Metanbreyttur
CARRERA4 911 964 - 3,6L '91
CHAPPARAL SSI 180 '04