Mér finnst ekkert að því að tryggingafélögin vilja bjóða eigendum eldri bíla upp á þessa þjónustu, þ.e. lægra verð. Hver getur verið á móti því?
Það er frábært að félagar í Fornbílaklúbbnum fengu þessa lækkun á sínum tíma

en það er alfarið í höndunum á tryggingafélögunum að ákveða hvaða kjör þeir bjóða sínum v.v.
Ef einhverjir "slúbbertar" eru að keyra dags daglega á bílunum sínum á fornbílatryggingu þá er það auðvitað tryggingafélagana að setja v.v. sínum skilyrði.
Annars var ég einn þessara "slúbberta" því að ég fékk á sínum tíma fornbílatryggingu á 24 ára gamlan W123 daily driver hjá VÍS. Það eina sem ég sagði við tryggingasalann var að þetta væri gamall bíll að detta inn í fornbílaaldurinn, þ.e. að verða 25 ára, og þá lækkuðu þeir trygginguna strax. Ég bað ekkert sérstaklega um "Fornbílaklúbbsverð" né var spurður um notkunina
