Síða 1 af 1
Fornbílatryggingar og akstur
Innsent: 15 Des 2010, 21:24
frá Victor
Hefur einhver velt því fyrir sér eða kinnt sér hvað má aka fornbifreið á þar til gerður tryggingum mikið yfir árið?
tryggingafélagið mitt bauð mér fornbílatryggingu og sagði mér að aðeins væri þetta til að aka á milli sýninga og þess háttar?
ég sagði nú að bíllin væri í hægri uppgerð og ég sé með annan (daeewoo)

sem aðal bíl og benz-inn væri ekki mikið notaður,
Hvað má, eða tellst vera eðlilegur akstur hjá ykkar tryggingarfélagi á fornbifreið?
kunningi minn er með jeppa á forntryggingum og hann ekur honum eins og hverjum öðrum, eða um 15 til 20.000þkm á ári
kv
Victor
Re: Fornbílatryggingar og akstur
Innsent: 15 Des 2010, 22:27
frá gmg
Bíllinn verður að vera skráður fornbíll ( 25 ára og eldri ).
Fornbílar eru aðallega notaðir á sumrin og ekki mikið, Það er ekkert spáð í akstur hjá mínu tryggingafélagi.
Re: Fornbílatryggingar og akstur
Innsent: 16 Des 2010, 00:41
frá Mercedes-Benz
Victor skrifaði:Hefur einhver velt því fyrir sér eða kinnt sér hvað má aka fornbifreið á þar til gerður tryggingum mikið yfir árið?
tryggingafélagið mitt bauð mér fornbílatryggingu og sagði mér að aðeins væri þetta til að aka á milli sýninga og þess háttar?
ég sagði nú að bíllin væri í hægri uppgerð og ég sé með annan (daeewoo)

sem aðal bíl og benz-inn væri ekki mikið notaður,
Hvað má, eða tellst vera eðlilegur akstur hjá ykkar tryggingarfélagi á fornbifreið?
kunningi minn er með jeppa á forntryggingum og hann ekur honum eins og hverjum öðrum, eða um 15 til 20.000þkm á ári
kv
Victor
Það er þessi líður sem er að misnota þessar tryggingar meðvitað um glæpinn og er svo að hækka tryggingarnar okkar með því að lenda í tjónum og vandræðagangi þegar svona þjófar eru að fornbílatryggja eitthverja brúksbíla....
En þetta er svosem bara ósköp venjulegt íslenskt. Misnota allt og kunna ekkert að skammast sín..
Svo fara vissulega bara félögin að setja reglur um hámarksnotkun til að koma eitthverjum böndum á svona skítapakk og við hinir líðum fyrir það.
Fornbílar eru til að nota þá á sumrin í hófi og með jákvæðu varðveisluhugarfari. Slíka bíla á ekki að nota sem eitthverja hversdagssnattpútu. Til þess eru aðrir tryggingaskilmálar.
Re: Fornbílatryggingar og akstur
Innsent: 16 Des 2010, 13:19
frá UnnarK
Ég er hjá Sjová og hjá þeim fæ ég fórnbílatrygginguna á minn bíl eftir ár og engin takmörkun á akstri eða þessháttar. Ég ætla mér nú að nýta mér það og keyra um eins og mér sýnist.
Auðvitað eru tryggingarnar ekki ætlaðar til þess en þeir bjóða mér þetta og ekki ætla ég að hækka tryggingarnar mínar um 100þús á ári út á eitthvað prinsip
Re: Fornbílatryggingar og akstur
Innsent: 16 Des 2010, 15:27
frá sveinn
Við sem eigum fornbíla höfum mikla hagsmuni að gæta hvað þessar tryggingar varðar.
Það var Fornbílaklúbburinn sem kom þessari tegund tryggingar í gegn með sérstöku samkomulagi við tryggingafélögin og það var byggt á ákveðnum forsendum. Forsendurnar fyrir þessu samkomulagi voru þær að þetta séu bílar sem eru hóflega notaðir og þá aðeins við góðar aðstæður. Enda þurfa menn að sýna fram á að þeir eigi annan bíl til daglegs brúks. Upphaflega þurftu menn líka að vera í Fornbílaklúbbnum til að fá þessa tryggingu. Áður en þetta náðist í gegn voru menn að taka bílana af númerum yfir veturna og þetta hafði bæði kostnað í för með sér og mikið vesen. Þetta skipti hinsvegar tryggingafélögin engu máli þar sem bílarnir voru hvort sem er í geymslu án númera og engin iðngjöld greidd af þeim. Þetta var aðal forsendan fyrir lækkun iðgjalda fornbíla.
Tryggingafélögin hafa hinsvegar enga ástæðu til að lækka tryggingar á bílum fyrir þá einu ástæðu að þeir eru orðnir 25 ára. Það er ekki hugsunin á bakvið þetta. Þess vegna gæti það auðveldlega gerst að tryggingafélögin hætti að bjóða upp á þessar tryggingar ef menn eru að misnota þær.
Auk þess er mjög auðvelt að fyrir tryggingafélagið að komast að því hvað bílnum hefur verið ekið mikið frá síðustu skoðun(um) og getur því fært rök fyrir því að tryggingin hafi verið fengin á fölskum forsendum. Ef tjón sem fornbíll veldur gerist að vetri til, t.d. í hálku og snjó, þá hefur tryggingafélagið fulla ástæðu til að skoða málið nánar. Tryggingafélagið gæti auk þess hugsanlega átt endurkröfurétt á þann sem er að misnota trygginguna.
Re: Fornbílatryggingar og akstur
Innsent: 16 Des 2010, 15:53
frá Loki
Mér hefur alltaf verið illa við þessa ódáma sem eru að skemma bíla og meiða sig og aðra í umferðinni. Í gegnum árin er ég er búinn að greiða stórfé fyrir þennan kjánaskap
Ef tryggingarfélag telur að verið é að misnota fornbíla -þá geta þau varla gert meiri kröfu á tryggingartaka en að hækka iðgjaldið í samræmi við almenna skilmála?
Re: Fornbílatryggingar og akstur
Innsent: 16 Des 2010, 16:16
frá Benni
Mér finnst ekkert að því að tryggingafélögin vilja bjóða eigendum eldri bíla upp á þessa þjónustu, þ.e. lægra verð. Hver getur verið á móti því?
Það er frábært að félagar í Fornbílaklúbbnum fengu þessa lækkun á sínum tíma

en það er alfarið í höndunum á tryggingafélögunum að ákveða hvaða kjör þeir bjóða sínum v.v.
Ef einhverjir "slúbbertar" eru að keyra dags daglega á bílunum sínum á fornbílatryggingu þá er það auðvitað tryggingafélagana að setja v.v. sínum skilyrði.
Annars var ég einn þessara "slúbberta" því að ég fékk á sínum tíma fornbílatryggingu á 24 ára gamlan W123 daily driver hjá VÍS. Það eina sem ég sagði við tryggingasalann var að þetta væri gamall bíll að detta inn í fornbílaaldurinn, þ.e. að verða 25 ára, og þá lækkuðu þeir trygginguna strax. Ég bað ekkert sérstaklega um "Fornbílaklúbbsverð" né var spurður um notkunina

Re: Fornbílatryggingar og akstur
Innsent: 16 Des 2010, 21:04
frá Victor
Loki skrifaði:Mér hefur alltaf verið illa við þessa ódáma sem eru að skemma bíla og meiða sig og aðra í umferðinni. Í gegnum árin er ég er búinn að greiða stórfé fyrir þennan kjánaskap
Ef tryggingarfélag telur að verið é að misnota fornbíla -þá geta þau varla gert meiri kröfu á tryggingartaka en að hækka iðgjaldið í samræmi við almenna skilmála?
Það geta nú skéð óhöpp hjá öllum

Re: Fornbílatryggingar og akstur
Innsent: 16 Des 2010, 21:10
frá Victor
Benni skrifaði:Mér finnst ekkert að því að tryggingafélögin vilja bjóða eigendum eldri bíla upp á þessa þjónustu, þ.e. lægra verð. Hver getur verið á móti því?
Það er frábært að félagar í Fornbílaklúbbnum fengu þessa lækkun á sínum tíma

en það er alfarið í höndunum á tryggingafélögunum að ákveða hvaða kjör þeir bjóða sínum v.v.
Ef einhverjir "slúbbertar" eru að keyra dags daglega á bílunum sínum á fornbílatryggingu þá er það auðvitað tryggingafélagana að setja v.v. sínum skilyrði.
Annars var ég einn þessara "slúbberta" því að ég fékk á sínum tíma fornbílatryggingu á 24 ára gamlan W123 daily driver hjá VÍS. Það eina sem ég sagði við tryggingasalann var að þetta væri gamall bíll að detta inn í fornbílaaldurinn, þ.e. að verða 25 ára, og þá lækkuðu þeir trygginguna strax. Ég bað ekkert sérstaklega um "Fornbílaklúbbsverð" né var spurður um notkunina

Já gott framlag, nú ek ég þessum benz eins og "kall með hatt og stefnuljósið á" í umferðinni, mér finnst það bara ekki passa við benz að vera með eitthvað spól eða spirnuhest, það eru getikki bílar í því,
hefur klúbburinn ath hvort einhvert tryggingarfélagið vilji skoða svona samninga ? Eru ekki 190 manns tæpir í klúbbnum ?
ef það væru tryggðir tæplega 200 Benzar hjá einu félaginu, gæti þá ekki náðst gott samkomulag,?
Re: Fornbílatryggingar og akstur
Innsent: 17 Des 2010, 11:14
frá Olbogi
Victor skrifaði:
Já gott framlag, nú ek ég þessum benz eins og "kall með hatt og stefnuljósið á" í umferðinni, mér finnst það bara ekki passa við benz að vera með eitthvað spól eða spirnuhest, það eru getikki bílar í því,
hefur klúbburinn ath hvort einhvert tryggingarfélagið vilji skoða svona samninga ? Eru ekki 190 manns tæpir í klúbbnum ?
ef það væru tryggðir tæplega 200 Benzar hjá einu félaginu, gæti þá ekki náðst gott samkomulag,?
Menn eru oftast með heimilis trygginguna og fleiri tryggingar á sama stað og þeir tryggja bílinn og hafa þar af leiðandi fengið tilboð í "pakkann". Mér persónulega finnst það ekki vera ómaksins virði að flytja einn af þrem bílum mínum í annað tryggingarfélag fyrir 5-10þ sparnað af þeim bíl.