Vantar infó um dísel benza W124!

#1
LONG TIME NO SEE!

Nú er maður kominn í skólann og auk þess kominn með http://www.blyfotur.is í gang og því ekki mikill tími fyrir hin spjöllin sem stendur.

Hinsvegar er ég kominn í bílapælingar aftur, ég er að velta fyrir mér 7 manna W124 bíl, TE semsagt... stefnan er líklega tekin á dísel þar sem eldsneytiseyðsla er lykilatriði þar sem þetta verður langkeyrslubíll (nánast eingöngu).

Nú spyr ég ykkur fróðu menn, hvaða dísel bíll væri hagstæðustu kaupin, og ef það verður of erfitt að finna 7 manna dísel hvaða bensínbíll myndi þá eyða minnstu?

Þetta má ekki kosta mikið, bíllinn verður líklega sóttu til þýskalands en 4000 evrur eru líklega hámarkið. Útlit og búnaður skiptir ENGU máli en bíllinn verður að vera vel hirtur og í góðu standi, loftkæling er eina skilyrðið.

Eitt í viðbót, ætti maður að taka ssk eða bsk upp á praktík að gera?

Kær kveðja, með von um hjálp,
Ingvar...

Það má líka meila á mig á ingvar@blyfotur.is


Ingvar Örn Ingvarsson
http://www.blyfotur.is

#3
E 220T bíllinn minn hefur komið rosalega vel út í rekstri. Ég er búinn að eiga hann núna í 3 ár og keyra rúma 50 þkm. Bíllinn var að skríða yfir 200 þkm. og það sem ég hef þurft að gera við hann á þessum tíma er eftirfarandi:

skipta um vatnsdælu
skipta um loftdælu fyrir samlæsingu
skipta um bremsuborða og diska.

That is it fyrir utan smurningu! Eyðslan er ótrúlega lítil og ssk. bílarnir eyða minnu en þeir bsk! Hér sérðu stats fyrir E 220T og eyðslan í mínum hefur verið max 1 lítra yfir uppgefnar tölur hér á fróni.
http://www.mercefreaken.com/modellene/124/e220t.htm

Og hér getur þú flett upp hvaða bíl sem er af w124 seríunni:
http://www.mercefreaken.com/modellene/124/124.htm

Ég þekki ekkert dísel bílana en 300 TD hlýtur að vera nokkuð góður.

Þetta er frábærlega praktískir og góðir fjölskyldubílar að mínu mati.

Hér sérðu umfjöllun um kosti og galla þessara bíla á Auto Bild.

http://www.autobild.de/suche/artikel.ph ... el_seite=0
Fyrri bílar:
2002 E320 cdi estate
500E 1992
E220 T 1993
500E 1993
E420 1995
A160 1999

#6
Ég myndi stefna á 250TD eða 300TD og helst myndi ég vilja hafa hann beinskiptan. Það getur verið virkilega gaman að aka góðum díselbíl sem er beinskiptur, fyrir utan hvað þeir eru miklu sprækari svoleiðis.

Hér er til að mynda einn sem ég væri alveg til í að eiga, lítið ekinn á mjög hóflega gjaldi. Bara ein skráveifa á bretti sem er miður.
http://mobile.de/SIDIhr8iER36dxr4aBf7Za ... 144307967&

Hér er annar virkilega fallegur 300 bíll sem líka er vitrænt að skoða. Hann er líka beinskiptur.
http://mobile.de/SIDIhr8iER36dxr4aBf7Za ... 144217211&

Svo er hér laglegur 300 bíll með bátagírkassa sem fæst á hóflegu gjaldi til útflutnings. Hann er kominn í kvartmiljón kílómetra, en það er held ég bara tilkeyrsla á svona bíl.
http://mobile.de/SIDIhr8iER36dxr4aBf7Za ... 06&top=43&

Svo er hér einn ódýr og lítið ekinn sem ekki lítur ólaglega út. Hann er fallegur á litinn og bara virkilega næs. Þetta eru kanski jög góð kaup.
http://mobile.de/SIDSPXkWxn9T0ZuJzxDqjt ... 60&top=33&

Svo er hér einn mjög nýlegur fyrir laghennta. Kanski of mikið verk en samt fyrir, reyndar mjög, laghennta
http://mobile.de/SIDJDMKJSxHFJwDQcyZCZS ... 67&top=20&

Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#7
Takk Rúnar, mér finnst efstu tveir bílarnir sérlega góður kostir og ég var ekki búin að sjá þá áður....

Mér datt reyndar í hug hvort Volvo 940 gæti verið góður kostur, vandaðir bílar og mjög stórir með dísel túrbó vél, en mér segir svo hugur að benzinn sé talsvert sparneytnari.

Ef ég fer í einhvenr svona antí sportbíl þá er eins gott að hann sé praktískur - það er heldur ekki verra að hann hreyfist en það þýðir yfirleitt miklu hærri tolla hér í DK.
Ingvar Örn Ingvarsson
http://www.blyfotur.is

#8
Ég vona bara að þér gangi vel að finna rétta bílinn og það verður gaman að fylgjast með hvað þú finnur. Ég er alveg sammála þér með efstu tvo bílana og sérstaklega númer 2. Þetta eru að mínu mati mjög rekstrarvænir bílar og það væri ekki búið að aka eitthverjum þúsundum svona bíla út sem leigubílum ef þetta væru eitthver skrapatól.

Ég minni á svona fyrir DK mann eins og þig að "Mænd med hjerne, de körer bil med en stjerne".
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#9
Mercedes-Benz skrifaði:Ég vona bara að þér gangi vel að finna rétta bílinn og það verður gaman að fylgjast með hvað þú finnur. Ég er alveg sammála þér með efstu tvo bílana og sérstaklega númer 2. Þetta eru að mínu mati mjög rekstrarvænir bílar og það væri ekki búið að aka eitthverjum þúsundum svona bíla út sem leigubílum ef þetta væru eitthver skrapatól.

Ég minni á svona fyrir DK mann eins og þig að "Mænd med hjerne, de körer bil med en stjerne".
HEHEHE - góður frasi!

Svo var nú einn leigubíll til sölu í þessum skemmtilega þýska taxa lit
Ingvar Örn Ingvarsson
http://www.blyfotur.is

#10
Bebecar skrifaði:Svo var nú einn leigubíll til sölu í þessum skemmtilega þýska taxa lit
Já það er nú ekki ljótur litur. Hann er praktiskur og ekki skítsæll og fer bara alls ekki ólaglega á Benz. Þess vegna var þjóðverjinn svo sniðugur að velja leigubílunum þennan mjög svo sniðuga lit


Hvaða ansk..... bull er þetta. Það er bara litur sem á að vera á taxa og er ekkert laglegur. Ekki einu sinni þó farið sé með bílinn út fyrir Þýskaland.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)