Ágætu félagsmenn,
félagsskírteinin hafa verði send til þeirra sem greitt hafa árgjald fyrir 2010.
Þó nokkrir munu fá send tvö skírteini í þessari sendingu, íslenskt og erlent (Mercedes-Benz (MB) Club Card).
Íslenska skírteinið ætlum við að nota áfram næstu árin og er það ósk okkar að félagsmenn geymi það vel.
Á íslenska kortinu er sérstakur giltistímareitur sem á stendur 2010 en í framtíðinni munum við senda félagsmönnum límmiða (með ártali) fyrir þennan reit.
Þeir sem ekki fá núna erlenda kortið (MB ClubCard) munu fá það sent í pósti þegar það berst til okkar.
MB ClubCard kortið gildir áfram allstaðar í heiminum þar sem félagsmenn fá sérkjör í gegnum Mercedes-Benz Clubs International.
Hér fyrir neðan eru sýnis horn af innlenda og erlenda skírteininu:
Íslenskt skírteini - framhlið:
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... nt%20A.jpg[/img]
Íslenskt skírteini - bakhlið:
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... ck%20a.jpg[/img]
Alþjóðlegt skírteini - framhlið:
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... nt%20a.jpg[/img]
Alþjóðlegt skírteini - bakhlið:
[img]
http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... ck%20A.jpg[/img]
Alþjóðlega skírteinið veitir afslátt á vöru og þjónustu hjá samstarfsaðilum Mercedes-Benz Clubs International.
Hér má sjá dæmi um erlenda samstarfsaðila á eftirfarandi síðu:
http://www.mercedes-benz-clubs.com/" onclick="window.open(this.href);return false;
Ath. að síðan kemur ýmist upp á ensku eða þýsku. Skipt er um tungumál neðst á síðunni. Hins vegar er svokallaður "rabatlisti" (listi yfir þá sem veita afslátt") á þýsku og því ekki auðvelt fyrir alla að skilja hann
