Félagsskírteini MBKÍ fyrir árið 2010

#1
Ágætu félagsmenn,

félagsskírteinin eru væntanleg til okkar í vikunni og verða send í pósti strax eftir helgina.

Þeir sem ekki hafa sent okkur upplýsingar um að þeir hafi ekki fengið Mercedes-Benz Classic tímaritið eru vinsamlegast beðnir um að senda okkur tölvupóst með þeim upplýsingum á netfangið vefstjorn@stjarna.is.

Stjórn klúbbsins mun koma saman um helgina til þess að koma kortunum frá okkur.

Enn og aftur biðst stjórn klúbbsins afsökunar á þeim töfum sem hafa orðið á afgreiðslu félagsskírteina.

Kveðja,
Stjórn Mercedes-Benz klúbbs Íslands.


-----------------------------------------------------
Stjórn Mercedes-Benz klúbbs Íslands
Netfang: mbki @ mbclub.is

Re: Félagsskírteini MBKÍ fyrir árið 2010

#2
Ágætu félagsmenn,

félagsskírteinin hafa verði send til þeirra sem greitt hafa árgjald fyrir 2010.

Þó nokkrir munu fá send tvö skírteini í þessari sendingu, íslenskt og erlent (Mercedes-Benz (MB) Club Card).
Íslenska skírteinið ætlum við að nota áfram næstu árin og er það ósk okkar að félagsmenn geymi það vel.
Á íslenska kortinu er sérstakur giltistímareitur sem á stendur 2010 en í framtíðinni munum við senda félagsmönnum límmiða (með ártali) fyrir þennan reit.
Þeir sem ekki fá núna erlenda kortið (MB ClubCard) munu fá það sent í pósti þegar það berst til okkar.

MB ClubCard kortið gildir áfram allstaðar í heiminum þar sem félagsmenn fá sérkjör í gegnum Mercedes-Benz Clubs International.

Hér fyrir neðan eru sýnis horn af innlenda og erlenda skírteininu:

Íslenskt skírteini - framhlið:
[img]http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... nt%20A.jpg[/img]
Íslenskt skírteini - bakhlið:
[img]http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... ck%20a.jpg[/img]

Alþjóðlegt skírteini - framhlið:
[img]http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... nt%20a.jpg[/img]
Alþjóðlegt skírteini - bakhlið:
[img]http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... ck%20A.jpg[/img]

Alþjóðlega skírteinið veitir afslátt á vöru og þjónustu hjá samstarfsaðilum Mercedes-Benz Clubs International.
Hér má sjá dæmi um erlenda samstarfsaðila á eftirfarandi síðu:
http://www.mercedes-benz-clubs.com/" onclick="window.open(this.href);return false;
Ath. að síðan kemur ýmist upp á ensku eða þýsku. Skipt er um tungumál neðst á síðunni. Hins vegar er svokallaður "rabatlisti" (listi yfir þá sem veita afslátt") á þýsku og því ekki auðvelt fyrir alla að skilja hann :?
-----------------------------------------------------
Stjórn Mercedes-Benz klúbbs Íslands
Netfang: mbki @ mbclub.is

Re: Félagsskírteini MBKÍ fyrir árið 2010

#6
ég er bara buinn að fá annað skírteinið , en ég er samt mega sáttur að vera kominn á blað í MB-klúbbnum
Magnús B Arnarsson
Subaru Impreza 1996 (winter beater)
Polo 1.4 1999 (seldur)
Vento 2.0 1994 (seldur)
Benz E220 1994 (í notkun)
Kymco 50cc :cool: (selt)
"Losers always whine about their best. Winners go home and f*** the prom queen."