Silfur-örvarnar snúa aftur í F1

#1
Mercedes-Benz mun keppa með sínu eigin liði og undir merki Mercedes-Benz á næsta ári í Formúlu 1. Þeir eru búnir að kaupa meirihlutann í Brown liðinu og keppa undir eigin merkjum hér eftir. Ross Brown mun stýra þessu nýja liði. Samstarfinu við McLaren er því lokið, en þeir munu reyndar áfram sjá þeim fyrir vélum.

Fréttatilkynning frá Daimler AG hér

Þetta verður spennandi :clapping: :clapping: 8) 8) 8) 8) 8) 8)
[img]http://stjarna.is/misc/091116_02.jpg[/img]


Sveinn

Re: Silfur-örvarnar snúa aftur í F1

#2
Já segðu 8)

McLaren er að koma með sinn eigin bíl sem klárlega verður í samkeppni við SLSinn svo að manni hefur fundist eins og það væri að draga í sundur með fyrirtækjunum.
Að maður tali nú ekki um allt umstangið og klúðrið í kringum "Ferrari-McLaren hneykslið" :roll:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Silfur-örvarnar snúa aftur í F1

#4
Náði í þessa frétt af http://www.kappakstur.is" onclick="window.open(this.href);return false; :
Rosberg ráðinn til Mercedes liðsins

Mercedes bílaframleiðandinn sem tilkynnti að hann ætlar að keppa undir eigin merkjum á næsta ári hefur ráðið Nico Rosberg sem annan ökumann liðsins.

Liðið er enn í viðræðum við Jenson Button og Nick Heidfeld. Ekki er ólíklegt að Kimi Raikkönen beri víurnar í nýtt lið með auknu fjármagni, en umboðsmenn hans heimsóttu þó McLaren í síðustu viku. Sama gerði Jenson Button.

En tilkoma Mercedes inn í Brawn liðið er hvalreki á fjörur Formúlu 1, því fyrirtækið hefur til þessa unnið með McLaren. Mercedes útvegar McLaren vélar til ársins 2015, en ætlar að selja sinn hlut á næstu tveimur árum í McLaren. Eignarhluturinn er 40%.

Ron Dennis hjá McLaren segist fagna breytingunum og samningum um vélar við Mercedes. McLaren geti nú einbeitt sér að því að vera sjálfstæður rekstraraðili.

Nobert Haug sagði að formlega yrði tilkynnt um ökumenn liðsins á næstu vikum, en ljóst að Rosberg er ráðinn. Mercedes vildi þýskan ökumann um borð í bíl sinn.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: Silfur-örvarnar snúa aftur í F1

#5
LOKSINS LOKSINS LOKSINS !!!

Þegar flestir bílaframleiðendur ætla að draga sig úr keppni útaf kreppu þá ætlar Mercedes að ganga enn lengra í sinni þáttöku !

Stórt LIKE á það :D
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin
cron