Síða 1 af 4
Silfur-örvarnar snúa aftur í F1
Innsent: 16 Nóv 2009, 13:01
frá sveinn
Re: Silfur-örvarnar snúa aftur í F1
Innsent: 16 Nóv 2009, 13:12
frá Benni
Já segðu
McLaren er að koma með sinn eigin bíl sem klárlega verður í samkeppni við SLSinn svo að manni hefur fundist eins og það væri að draga í sundur með fyrirtækjunum.
Að maður tali nú ekki um allt umstangið og klúðrið í kringum "Ferrari-McLaren hneykslið"

Re: Silfur-örvarnar snúa aftur í F1
Innsent: 16 Nóv 2009, 16:08
frá JBV
Þetta er annsi athygglisverð frétt! Buton og Hamilton liðsfélagar?!?
Re: Silfur-örvarnar snúa aftur í F1
Innsent: 16 Nóv 2009, 16:19
frá JBV
Náði í þessa frétt af
http://www.kappakstur.is" onclick="window.open(this.href);return false; :
Rosberg ráðinn til Mercedes liðsins
Mercedes bílaframleiðandinn sem tilkynnti að hann ætlar að keppa undir eigin merkjum á næsta ári hefur ráðið Nico Rosberg sem annan ökumann liðsins.
Liðið er enn í viðræðum við Jenson Button og Nick Heidfeld. Ekki er ólíklegt að Kimi Raikkönen beri víurnar í nýtt lið með auknu fjármagni, en umboðsmenn hans heimsóttu þó McLaren í síðustu viku. Sama gerði Jenson Button.
En tilkoma Mercedes inn í Brawn liðið er hvalreki á fjörur Formúlu 1, því fyrirtækið hefur til þessa unnið með McLaren. Mercedes útvegar McLaren vélar til ársins 2015, en ætlar að selja sinn hlut á næstu tveimur árum í McLaren. Eignarhluturinn er 40%.
Ron Dennis hjá McLaren segist fagna breytingunum og samningum um vélar við Mercedes. McLaren geti nú einbeitt sér að því að vera sjálfstæður rekstraraðili.
Nobert Haug sagði að formlega yrði tilkynnt um ökumenn liðsins á næstu vikum, en ljóst að Rosberg er ráðinn. Mercedes vildi þýskan ökumann um borð í bíl sinn.
Re: Silfur-örvarnar snúa aftur í F1
Innsent: 16 Nóv 2009, 18:18
frá Ásgeir Yngvi
LOKSINS LOKSINS LOKSINS !!!
Þegar flestir bílaframleiðendur ætla að draga sig úr keppni útaf kreppu þá ætlar Mercedes að ganga enn lengra í sinni þáttöku !
Stórt LIKE á það

Re: Silfur-örvarnar snúa aftur í F1
Innsent: 16 Nóv 2009, 19:01
frá Benzari
Snilld

Re: Silfur-örvarnar snúa aftur í F1
Innsent: 16 Nóv 2009, 19:09
frá hjalti.g
Þetta verður fróðlegt, bara gaman að þessu

Re: Silfur-örvarnar snúa aftur í F1
Innsent: 16 Nóv 2009, 21:57
frá gmg
Loksins komnir af alvöru í F1 !!!!
Re: Silfur-örvarnar snúa aftur í F1
Innsent: 17 Nóv 2009, 11:12
frá HAMAR
Re: Silfur-örvarnar snúa aftur í F1
Innsent: 22 Nóv 2009, 10:24
frá Sergio
Þetta eru glæsilegar fréttir!
Núna vantar bara Benz í WRC
