Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??

#33
Þetta skýrist allt strákar, verst samt að það sé bara einn mótor til hérna því ég er ekki vongóður um að hann KRK selji hann eftir samtalið um daginn, var að vona að það væri einhversstaðar annað 6.9 flak til eða vél í einhverjum bílskúrnum. Ætli ég muni ekki kaupa rellu að utan einn daginn þegar gengið hefur lagast og allt annað er komið í stand en það er nú enn soldið í það að ég verði orðinn sáttur við allt.... :roll: .

Athyglisvert að þessi SLC bíll hafi verið original 2,8.
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722

Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??

#34
Gizmo skrifaði:Þetta skýrist allt strákar, verst samt að það sé bara einn mótor til hérna því ég er ekki vongóður um að hann KRK selji hann eftir samtalið um daginn, var að vona að það væri einhversstaðar annað 6.9 flak til eða vél í einhverjum bílskúrnum. Ætli ég muni ekki kaupa rellu að utan einn daginn þegar gengið hefur lagast og allt annað er komið í stand en það er nú enn soldið í það að ég verði orðinn sáttur við allt.... :roll: .

Athyglisvert að þessi SLC bíll hafi verið original 2,8.
Skv. samtali sem ég átti í dag við aðila sem þekkir vel til þessa bíls þá ku þetta vera 450 bíll en hefur lent í einhverskonar skráningarugli "a la gamla Bifreiðaeftirlitið" og var skráningunni þá breytt í 2,8 :shock: . Var víst upphaflega skráður sem 4,5 og hefur þetta ekki verið leiðrétt :roll:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??

#35
Það er spurning hvað ætlar maðurinn sér að gera við w116 6.9, ætlar hann sér að gera hann upp ?

Er það hægt að fara að gera þennan bíl upp ? Já það er hægt, en það kostar $$$$$ eða €€€€€€€€€, þannig að ég held að það verði nú ekkert úr því að þessi bíll verði gerður upp þarna á túninu !

Bezt væri ef að maðurinn væri til í að selja Bjarna Mótorinn eða bílinn !
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??

#36
[img]http://fornbilar.stjarna.is/images/w116/w116_13a.jpg[/img]

Svo vangaveltur um þennan bíl séu á hreinu :wink:

Úr umferðaskrá:

Skráningarnúmer..: Ö18
Fastanúmer..........: DÖ752
Verksmiðjunúmer.: WDB11603312009342
Tegund................: MERCEDES BENZ
Undirtegund.........: 450SEL
Litur....................: Brúnn
Fyrst skráður........: 27.07.1973
Staða...................: Í lagi
Næsta aðalskoðun.: 01.08.1999


116.020 (280S)
116.024 (280SE)
116.025 (280SEL)
116.028 (350SE)
116.029 (350SEL)
116.032 (450SE)
116.033 (450SEL)
116.036 (450SEL 6.9)
116.120 (300SD)


Hmmm, hefur samkvæmt þessu ekki mætt í skoðun á þessari öld, eða í 10 ár :roll:
Sveinn

Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??

#37
Það myndi aldrei borga sig að gera þann hvíta upp, svona bílar eru ekki mjög dýrir í usa og hægt væri að koma góðum bíl heim fyrir ca 2 millur +

Þessi fyrir norðan er ónýtur, það er klárt, en hann keypti flakið til að eiga nóg af varahlutum í mótorinn í þeim rauða. Verst að sá rauði er ekki með 6.9 og fátt ef nokkuð úr 6.9 passar í 4.5 eða nokkuð annað....
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722

Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??

#38
Ég man eftir að hafa séð silfurgráum 450 SEL sem var í eigu Jakobs nokkurs sem kenndur var við Faxastál, Renniverkstæði sem hann rak á Smiðju/Skemmuveginum. Mig mynnir að það hafi verið 6.9 en er þó ekki viss. E.t.v. kannast einhver spjallverji við bílinn og getur sagt til um þetta. Ef ekki þarf ég að athuga þetta nánar.

Kv, Geir.

P.s. Ég man eftir að hafa skipt um drif í hvítum 116 6.9 það var ´94-5 að mig minnir, og var sá bíll í nokkuð góðu ástandi á þeim tíma. Synd að sjá ef það er bíllinn sem myndir eru af hér að ofan. En ég man að fjöðrunarkerfið vakti furðu eins og gefur að skilja.

Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??

#39
spjot skrifaði:Ég man eftir að hafa séð silfurgráum 450 SEL sem var í eigu Jakobs nokkurs sem kenndur var við Faxastál, Renniverkstæði sem hann rak á Smiðju/Skemmuveginum. Mig mynnir að það hafi verið 6.9 en er þó ekki viss. E.t.v. kannast einhver spjallverji við bílinn og getur sagt til um þetta. Ef ekki þarf ég að athuga þetta nánar.

Kv, Geir.

P.s. Ég man eftir að hafa skipt um drif í hvítum 116 6.9 það var ´94-5 að mig minnir, og var sá bíll í nokkuð góðu ástandi á þeim tíma. Synd að sjá ef það er bíllinn sem myndir eru af hér að ofan. En ég man að fjöðrunarkerfið vakti furðu eins og gefur að skilja.
Sá bíll er EKKI 6,9 !
[img]http://fornbilar.stjarna.is/images/w116/w116_04a.jpg[/img]
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

Re: 450SE 6.9, hve margir voru til og hvar eru þeir ??

#40
[img]http://fornbilar.stjarna.is/images/w116/w116_04a.jpg[/img]

Skráningarnúmer.: Y5566
Fastanúmer.........: HT517
Verksmiðjunúmer: WDB11603312086532
Tegund...............: MERCEDES BENZ
Undirtegund........: 450SEL
Litur...................: Grár
Fyrst skráður.......:
Staða..................: Í lagi
Næsta aðalskoðun: 01.06.2009

116.020 (280S)
116.024 (280SE)
116.025 (280SEL)
116.028 (350SE)
116.029 (350SEL)
116.032 (450SE)
116.033 (450SEL)
116.036 (450SEL 6.9)
116.120 (300SD)

Var ekki talað um það á tímabili að þessi bíll hefði verið fluttur út fyrir nokkrum árum? ...Hann virðist nú hafa verið skoðaður hér í fyrra a.m.k... :roll: ...gott mál! 8) :wink:
Sveinn