adler skrifaði:Er stefnan að hér verði bara já menn að tjá sig algjörlega litlausir og flatir og án allra persónulegra einkenna ?
Nei að sjálfsögðu ekki. Hér eiga menn að tjá sig með allri sinni litadýrð, hæðum og lægðum á sinn persónulega hátt. Þó frábiður spjallumsjón sér það að menn séu að skítkastast hvor út í annan með ósæmilegum munnsöfnuði.
2. Menn skulu leitast við að gæta orðalags og sýna háttvísi í innleggjum sínum á spjallinu. Allt móðgandi, særandi, dónalegt, hatursfullt og kynferðislegt tal, vísvitandi lygar, hótanir eða annað háttalag sem varðað getur við lög er óleyfilegt hér á spjallinu.
Þú varpar fram athyggliverðri hugmynd Adler! Ég leyfi mér að efast um að af því geti nokkurntímann orðið. Það þyrfti þá að byggja svo stóra kapellu fyrir svona stóran og ört stækkandi "söfnuð".
adler skrifaði:Þetta er hættuleg þróun hjá ykkur að mínu mati sem gæti hæglega farið illa. Samanber Hilla gamla þegar að hann ákvað að hvíti kynstofnin væri æðri öðrum kynstofnum þá er eins verið að hreinsa til hér eins og hann varð svo frægur fyrir á þessu spjalli með því ákveða að þeir sem eru ekki á sömulínu og stjórnendur klúbbsins t.d varðandi húmor og skoðanir eru sjáfkrafa orðnir óæskilegir og óhæfir til að taka þátt í já kórnum þar sem allir eru stilltir og án allra persónulegra skoðana.
Aukning notenda á spjallinu er orðin umtalsverð frá því í haust. Þá á ég við bæði virka notendur sem og þá sem lesa spjallið. Ástæður fyrir fjölgun notenda á spjallinu geta verið af ýmsum toga. M.a. eru getgátur um að menn hafi meiri tíma til þess áð stunda spjallið eftir að kreppan skall á. Svo ber að geta um Mercedes-Benz hópinn inn á facebook sem hefur dregið að sér töluverðan slatta af nýju fólki. Sem hafa í framhaldinu skráð sig hingað inn . Þá höfum við, sem um spjallið halda, fengið nokkrar ábendingar um að Benz spjallið sé einmitt ánægjulegur vetvangur skrafs og aflestrar, vegna þess að þar sé gagnkvæm virðing í hávegum höfð. Þ.a.l. teljum við í spjallumsjóninni þetta vera góða þróun heldur en hitt. Og ásaknir þínar um að spjallumsjón stjarna.is standi í einhverjum "hreinsunum" á sér enga stoð í raunveruleikanum og vísum við þeim því þráðbeint aftur til föðurhúsanna!
adler skrifaði:Eflaust má túlka eitthvað í þessum texta mínum sem særandi, dónalegt og eða jafnvel hatursfullt.
En það er ekki ætlun mín að þetta sé túlkað svo .
2. Kjósi menn að taka hlutdregna afstöðu og koma á framfæri ákveðnum meiningum varðandi einstaklinga og/eða fyrirtæki, skulu þeir hafa nafn sitt í undirskrift, ellegar skulu þeir hafa yfirlýsingar sínar fyrir sjálfa sig.
Með kveðju Örn stefánsson
Ekki lít ég á neitt í þessum texta sem særandi eða dónalegt né hatursfullt (þó er samlíking við Hilla gamla á grensunni). Þetta eru bara ágætis umræður sem er gott að koma með upp á yfirborðið til þess að fá viðhorf spjallstjórnar fram. Einnig má nálgast þau í reglum spjallsins sem ég tel vera nokkuð skýrt og skilmerkilega framsett.
En ég fagna því hins vegar að þú skulir í fyrsta skipti skrifa undir þínu rétta nafni í fyrsta skipti hér á þessu spjalli. Hvet ég þig hér með að setja nafnið þitt í fasta undirskrift hér eftir.
Kveðja,