Tilkynning frá vefstjórn !!

#1
Sælir félagar, til að hjálpa okkur gæta hlutleysis og að reglum spjallsins sé framfylgt þá hefur stjórn klúbbsins bætt við tveimur mönnum í Spjallumsjón, þannig að núna eru þeir þrír auk stjórnar !

Þannig að núna bætast við þeir Sigurður Hamar og Ásgeir Yngvi.

Stjórn klúbbsins er þeim mjög þakklát fyrir að vera til í að hjálpa okkur að halda spjallinu okkar á réttu plani.

Fyrir var Jón Birgir Valsson + stjórnin og varamenn stjórnar.

Góðar stundir !


Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

#4
Hlynzi skrifaði:Jæja, ritskoðunin heldur áfram.

en um að gera að losna við bull í sumum þráðum.
Þetta er nú aðallega gert til að létta á stjórninni og til að hjálpa okkur að hafa spjallið okkar virðulegt og laust við dónaskap og leiðindi :wink:
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

#5
Hlynzi skrifaði:Jæja, ritskoðunin heldur áfram.

en um að gera að losna við bull í sumum þráðum.
Það væri svo fyndið ef það stæði þarna núna "Þessu innleggi hefur verið eytt af stjórnanda" :lol:
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

#6
Er stefnan að hér verði bara já menn að tjá sig algjörlega litlausir og flatir og án allra persónulegra einkenna ?

Hvernig endar þetta ? verður kanski reist Benz kirkja í utanum söfnuðinn þar sem menn tilbiðja merkið og tegundina.

[img]http://farm3.static.flickr.com/2140/233 ... dcff86.jpg[/img]

Þetta er hættuleg þróun hjá ykkur að mínu mati sem gæti hæglega farið illa. Samanber Hilla gamla þegar að hann ákvað að hvíti kynstofnin væri æðri öðrum kynstofnum þá er eins verið að hreinsa til hér eins og hann varð svo frægur fyrir á þessu spjalli með því ákveða að þeir sem eru ekki á sömulínu og stjórnendur klúbbsins t.d varðandi húmor og skoðanir eru sjáfkrafa orðnir óæskilegir og óhæfir til að taka þátt í já kórnum þar sem allir eru stilltir og án allra persónulegra skoðana.
2. Menn skulu leitast við að gæta orðalags og sýna háttvísi í innleggjum sínum á spjallinu. Allt móðgandi, særandi, dónalegt, hatursfullt og kynferðislegt tal, vísvitandi lygar, hótanir eða annað háttalag sem varðað getur við lög er óleyfilegt hér á spjallinu.
Eflaust má túlka eitthvað í þessum texta mínum sem særandi, dónalegt og eða jafnvel hatursfullt.

En það er ekki ætlun mín að þetta sé túlkað svo .

2. Kjósi menn að taka hlutdregna afstöðu og koma á framfæri ákveðnum meiningum varðandi einstaklinga og/eða fyrirtæki, skulu þeir hafa nafn sitt í undirskrift, ellegar skulu þeir hafa yfirlýsingar sínar fyrir sjálfa sig.
Með kveðju Örn stefánsson
það ágætt að hafa nokkrar lausar skrúfur.
Á einn Benz >124-220E-1993<
Sælir eru fattlausir , því þeir fatta ekki hvað þeir eru vitlausir.
[img]http://www.killbillet.com/images/smilie ... s04247.gif[/img]

#7
mér finnst þetta bara frábæært og efa ég að ritskoðunin og að verið sé að eyða þráðum/loka þráðum hæækki eitthvað meira í hlutfalli ...

hamarinn og reynir eru nú ekki beint eitthverjar dósir sko,og það eru alveg menn sem kunna að taka gríni ,og efa ég stórlega að þeir verði með eitthver leiðindi eins og að loka þráðum og vesen... sem er reyndar bara útaf öðrum leiðindumm

frábæært framtak :wink:
Þorvaldur Björn Matthíasson

Mercedes Benz E55 kompressor 05 ÞBM

#8
Ef við eyðum eða breytum pósti þá fer pósturinn inn í spjallflokk sem við erum með hérna þar sem allir skoða hann, allir geta sagt sína skoðun á því hvort rétt hafi verið að loka eða breyta þræðinum.

Segjum sem dæmi eg færi póst því mér fannst einhver segja eitthvað sem vræi dónalegt eða þráðurinn bara farin út í vitleysu, set hann í spjallflokkinn okkar þar sem restinni af umsjónarmönnum spjallsins geta lesið hann, þeim finnst ekkert að honum þá er hann bara færður til baka.

En svo auðvitað getur það gerst að það verður farið að ritskoða alltof mikið, ég ætla ekki að útiloka þann möguleika og þá er bara um að gera og reyna að láta okkur vita, þið megið alltaf segja það sem ykkur finnst(hvort sem það er á spjallið eða í einkapósti), reynið bara að hafa það málefnalegt.
Halldór Björn Audi 1.8T Quattro Turbo
Mercedes Benz C36 ///AMG - Seldur
Olbogi skrifaði:
valdi skrifaði:þú þyrftir að finna þér nýtt grill.... það er farið að ryðga smá grillið í honum hjá þér :wink:
og afhverju stendur hann uppá bílasölu???
ef égætti svona þá fengi þetta aldrei að kólna... :mrgreen:
ef þú ættir svona væri hann bilaður
http://www.thunderbird.is" onclick="window.open(this.href);return false;

#10
adler skrifaði:Er stefnan að hér verði bara já menn að tjá sig algjörlega litlausir og flatir og án allra persónulegra einkenna ?
Nei að sjálfsögðu ekki. Hér eiga menn að tjá sig með allri sinni litadýrð, hæðum og lægðum á sinn persónulega hátt. Þó frábiður spjallumsjón sér það að menn séu að skítkastast hvor út í annan með ósæmilegum munnsöfnuði.
2. Menn skulu leitast við að gæta orðalags og sýna háttvísi í innleggjum sínum á spjallinu. Allt móðgandi, særandi, dónalegt, hatursfullt og kynferðislegt tal, vísvitandi lygar, hótanir eða annað háttalag sem varðað getur við lög er óleyfilegt hér á spjallinu.
adler skrifaði:Hvernig endar þetta ? verður kanski reist Benz kirkja í utanum söfnuðinn þar sem menn tilbiðja merkið og tegundina.

[img]http://farm3.static.flickr.com/2140/233 ... dcff86.jpg[/img]
Þú varpar fram athyggliverðri hugmynd Adler! Ég leyfi mér að efast um að af því geti nokkurntímann orðið. Það þyrfti þá að byggja svo stóra kapellu fyrir svona stóran og ört stækkandi "söfnuð". :lol:
adler skrifaði:Þetta er hættuleg þróun hjá ykkur að mínu mati sem gæti hæglega farið illa. Samanber Hilla gamla þegar að hann ákvað að hvíti kynstofnin væri æðri öðrum kynstofnum þá er eins verið að hreinsa til hér eins og hann varð svo frægur fyrir á þessu spjalli með því ákveða að þeir sem eru ekki á sömulínu og stjórnendur klúbbsins t.d varðandi húmor og skoðanir eru sjáfkrafa orðnir óæskilegir og óhæfir til að taka þátt í já kórnum þar sem allir eru stilltir og án allra persónulegra skoðana.
Aukning notenda á spjallinu er orðin umtalsverð frá því í haust. Þá á ég við bæði virka notendur sem og þá sem lesa spjallið. Ástæður fyrir fjölgun notenda á spjallinu geta verið af ýmsum toga. M.a. eru getgátur um að menn hafi meiri tíma til þess áð stunda spjallið eftir að kreppan skall á. Svo ber að geta um Mercedes-Benz hópinn inn á facebook sem hefur dregið að sér töluverðan slatta af nýju fólki. Sem hafa í framhaldinu skráð sig hingað inn . Þá höfum við, sem um spjallið halda, fengið nokkrar ábendingar um að Benz spjallið sé einmitt ánægjulegur vetvangur skrafs og aflestrar, vegna þess að þar sé gagnkvæm virðing í hávegum höfð. Þ.a.l. teljum við í spjallumsjóninni þetta vera góða þróun heldur en hitt. Og ásaknir þínar um að spjallumsjón stjarna.is standi í einhverjum "hreinsunum" á sér enga stoð í raunveruleikanum og vísum við þeim því þráðbeint aftur til föðurhúsanna!

adler skrifaði:Eflaust má túlka eitthvað í þessum texta mínum sem særandi, dónalegt og eða jafnvel hatursfullt.

En það er ekki ætlun mín að þetta sé túlkað svo .

2. Kjósi menn að taka hlutdregna afstöðu og koma á framfæri ákveðnum meiningum varðandi einstaklinga og/eða fyrirtæki, skulu þeir hafa nafn sitt í undirskrift, ellegar skulu þeir hafa yfirlýsingar sínar fyrir sjálfa sig.
Með kveðju Örn stefánsson
Ekki lít ég á neitt í þessum texta sem særandi eða dónalegt né hatursfullt (þó er samlíking við Hilla gamla á grensunni). Þetta eru bara ágætis umræður sem er gott að koma með upp á yfirborðið til þess að fá viðhorf spjallstjórnar fram. Einnig má nálgast þau í reglum spjallsins sem ég tel vera nokkuð skýrt og skilmerkilega framsett.
En ég fagna því hins vegar að þú skulir í fyrsta skipti skrifa undir þínu rétta nafni í fyrsta skipti hér á þessu spjalli. Hvet ég þig hér með að setja nafnið þitt í fasta undirskrift hér eftir.

Kveðja,
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019
cron