#3
gmg skrifaði:Heineken hjá mér, búinn að halda mig við þessa tegund síðan 198?
Held að Valdi hafi ekki verið fæddur þá :lol: :lol: :lol:
MERCEDEZ S 500 ÁRG 94
MERCEDES 230 E COUPE ÁRG 90 í uppgerð
RENAULT KANGOO ÁRG 2011/SVARTUR

GET ALDREI Keyrt eins og Rafynjan
ÞARF Mikið TIL!!!!!
SVONA TVO

#4
Mér finnst ljós Erdinger hveitibjór bestur af þeim bjór sem seldur er hér á landi.

Í Þýskalandi fæ ég hinsvega bjór sem mér finnst vera besti bjór í heimi, en það er hveitibjór sem heitir Farny Edelweissen.

[img]http://www.farny.de/Farny_New/Aktion/Fl ... lweiss.jpg[/img]
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#5
Bavarian Weißbier á einhverri sveitakránni í þýkalandi er Benzinn. Það eru ekki margir hvítbjórar sem fást hérlendis, en Erdingerinn er ágætur.
Sveinn

#6
Ahhh... í minningunni þá var það Kaiser Ruperti Gold sem var festivalbjór að mig minnir. Hef reyndar ekki smakkað hann (fæst ekki lengur) í meira en 20+ ár :roll:

Kaldi er góður kaldur, svona eins og tékkneskir bjórar almennt (já hann er bruggaður skv. tékkneskri hefð en með íslensku vatni :wink: ).
Pilzner Urquell og original Budweiser frá Tékklandi eru einnig skrambi góðir.
Stella Artois frá Belgíu minnir mig dálítið á Tékkneska bjóra, frábær kaldur en um leið og það volgnar aðeins þá finnst mér hann ódrekkandi.

Annars finnst mér bjór sem bruggaður er skv. aldagamallri þýskri hefð frá 1487 sem kallast Reinheitsgebot (var reyndar löggjöf í Þýskalandi fram að því að ESB dómstóll felldi það að mig minnir).
Þessi hefð var meira eða notuð í þeim löndum sem Þjóðverjar eða Austurríkismenn réðu og þess vegna er hefðbundinn bjór frá Þýskalandi, Austurríki, Tékklandi, Póllandi og Ungverjalandi tiltölulega svipaður.

Þá er bjórhefð í Belgíu ansi skemmtileg, fullt af skemmtilegum bjórum þaðan þó þeir séu töluvert öðruvísi en "þýskur" bjór.

Varðandi íslenskan bjór þá er Kaldi fínn en svo finnst mér gott að fá mér "svaladrykki" öðru hvoru eins og Egils Lite sem minnir mig á annan góðan sólardrykk sem heitir Corona og er reyndar frá mexíkó 8)
Annars eru ýmsir ágætir, t.d. sá "alíslenski" Egils Premium sem virðist reyndar einnig vera bruggaður skv. tékkneskri fyrirmynd :wink:

Get ómögulega gert það upp við mig hver sé bestur en á auðvelt með að segja hverjir séu vondir :lol:
Benedikt Hans Rúnarsson

#8
GUMMCO skrifaði:
gmg skrifaði:Heineken hjá mér, búinn að halda mig við þessa tegund síðan 198?
Held að Valdi hafi ekki verið fæddur þá :lol: :lol: :lol:
nei ég fæddist 1991 ef þig langar að vita það....

en THULE FOR THE WIN!!!
Þorvaldur Björn Matthíasson

Mercedes Benz E55 kompressor 05 ÞBM

#9
en ég hinsvega elska að fá mér bara eins og 1 flösku af dönskum bjór þegar maður er bara á chillinu...man ekki hvað hann heitir þarf að komast að því...það er allavega ekki hægt að fá hann hérna á landinu
Þorvaldur Björn Matthíasson

Mercedes Benz E55 kompressor 05 ÞBM
cron