Ahhh... í minningunni þá var það Kaiser Ruperti Gold sem var festivalbjór að mig minnir. Hef reyndar ekki smakkað hann (fæst ekki lengur) í meira en 20+ ár
Kaldi er góður kaldur, svona eins og tékkneskir bjórar almennt (já hann er bruggaður skv. tékkneskri hefð en með íslensku vatni

).
Pilzner Urquell og original Budweiser frá Tékklandi eru einnig skrambi góðir.
Stella Artois frá Belgíu minnir mig dálítið á Tékkneska bjóra, frábær kaldur en um leið og það volgnar aðeins þá finnst mér hann ódrekkandi.
Annars finnst mér bjór sem bruggaður er skv. aldagamallri þýskri hefð frá 1487 sem kallast
Reinheitsgebot (var reyndar löggjöf í Þýskalandi fram að því að ESB dómstóll felldi það að mig minnir).
Þessi hefð var meira eða notuð í þeim löndum sem Þjóðverjar eða Austurríkismenn réðu og þess vegna er hefðbundinn bjór frá Þýskalandi, Austurríki, Tékklandi, Póllandi og Ungverjalandi tiltölulega svipaður.
Þá er bjórhefð í Belgíu ansi skemmtileg, fullt af skemmtilegum bjórum þaðan þó þeir séu töluvert öðruvísi en "þýskur" bjór.
Varðandi íslenskan bjór þá er Kaldi fínn en svo finnst mér gott að fá mér "svaladrykki" öðru hvoru eins og Egils Lite sem minnir mig á annan góðan sólardrykk sem heitir Corona og er reyndar frá mexíkó
Annars eru ýmsir ágætir, t.d. sá "alíslenski" Egils Premium sem virðist reyndar einnig vera bruggaður skv. tékkneskri fyrirmynd
Get ómögulega gert það upp við mig hver sé bestur en á auðvelt með að segja hverjir séu vondir
