Hver verður meistari liða 2008 ?

Mc-Laren
Heildar atkvæði: 24 (69%)
Ferrari
Heildar atkvæði: 9 (26%)
Renault (Engin atkvæði)
BMW (Engin atkvæði)
Honda
Heildar atkvæði: 1 (3%)
Red Bull (Engin atkvæði)
Williams (Engin atkvæði)
Annað
Heildar atkvæði: 1 (3%)
Heildar atkvæði: 35

#61
Ég tók allavega þá ákvörðun að hætta að horfa á F1, á samt ekki von á að það komi niður á íþróttinni :lol:

En loksins þegar stefndi í skemmtilegt og spennandi mót þá þurfti FIA að eyðileggja það. Greinilegt að það MÁ bara eitt lið vinna.

Nota sunnudagana hér eftir í eitthvað meira spennandi og óútreiknanlegt eins og t.d. að leggja mig.


Siggi
Mercedes-Benz E500 ´03 8)

Mercedes-Benz makes cars, others only make vehicles

#63
Já, þetta jaðrar við að vera jafn leiðinleg braut og í Monaco. Það var einungis á einum stað sem gerlegt var að taka frammúr. En það var þó gaman að upplifa næturkappakstur, dálítið sérstakt. Þrátt fyrir rökkrið var 30° hiti!
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#64
Já, þetta er allt of þröng braut; eins og kappakstur í röri! Má ekki við neinu, þá þarf öryggisbíllinn að koma út.

Þó svo að það komi McLaren vel að Ferrari-lismenn hafi komið sigalausir úr keppninni, þá er ósanngjarnt að svona árekstur geti riðlað keppninni til eins og liðsmanni Alonso tókst að gera. Maður vill ekki að úrslit mótist af árekstri, en brautin bara bíður upp á þetta. Hraðari bílar voru langtímum saman fastir fyrir aftan hægfara bíla, eins og Turulli. Var það ekki nánast eini maðurinn sem var ekið framúr? Og það var bara hægt á einum stað.

Voðaleg glamúr braut, upplýst og gæsileg, en ekki að mínu skapi frekar en Monaco.
Sveinn

#66
Mér fannst nú svolítið fyndið að heyra þá Ferrrari bakkabræður í sjónvarpinu fagna heimsmeistaratitlinum of snemma. Annar þeirra missti út úr sér í æsinginum þegar hið rétta kom í ljós: “Og við forum farnir að fagna, já eða Ferrari menn voru farnir að fagna!”. :wink: :lol:
Sveinn

#67
sveinn skrifaði:Mér fannst nú svolítið fyndið að heyra þá Ferrrari bakkabræður í sjónvarpinu fagna heimsmeistaratitlinum of snemma. Annar þeirra missti út úr sér í æsinginum þegar hið rétta kom í ljós: “Og við forum farnir að fagna, já eða Ferrari menn voru farnir að fagna!”. :wink: :lol:
Þetta lýsti þeim vel !
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

#69
þetta var alveg ótrúlegt, ég bara átti ekki til orð þegar ég hélt að Hamilton væri búinn að klúðra þessu aftur !
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#70
Var að horfa á þetta á Sky, þar voru þeir með klippu frá ITV, þeir sáu Hamilton og Vettel fara fram úr Glock í síðustu beygjunni og sögðu strax að Hamilton væri kominn með titilinn.

Þeir Gunnlaugur og Jón Ragnarsson voru of uppteknir við að fagna Massa að þeir misstu af þessu !
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND