Hver verður meistari liða 2008 ?

Mc-Laren
Heildar atkvæði: 24 (69%)
Ferrari
Heildar atkvæði: 9 (26%)
Renault (Engin atkvæði)
BMW (Engin atkvæði)
Honda
Heildar atkvæði: 1 (3%)
Red Bull (Engin atkvæði)
Williams (Engin atkvæði)
Annað
Heildar atkvæði: 1 (3%)
Heildar atkvæði: 35

#41
gmg skrifaði:Svaka fjör á síðustu hringjum SPA, greyið Kimi að detta út á lokasprettinum en flott hjá Hamilton !
Þetta var svakalegt!! Þvílíkt skemmtilegt að fylgjast með barráttunni á milli Kimi og Hamilton á síðustu þremur hringjunum. Þegar það fór að rigna....VÁÁÁÁ MAÐUR!!


Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#42
Þvílikt kjaftæði, það er bókað mál ef þetta hefði verið öfugt þá hefði Ferrari ekki verið refsað!
http://www.mbl.is/mm/sport/formula/2008 ... _hamilton/
Halldór Björn Audi 1.8T Quattro Turbo
Mercedes Benz C36 ///AMG - Seldur
Olbogi skrifaði:
valdi skrifaði:þú þyrftir að finna þér nýtt grill.... það er farið að ryðga smá grillið í honum hjá þér :wink:
og afhverju stendur hann uppá bílasölu???
ef égætti svona þá fengi þetta aldrei að kólna... :mrgreen:
ef þú ættir svona væri hann bilaður
http://www.thunderbird.is" onclick="window.open(this.href);return false;

#44
gmg skrifaði:Þetta er rugl að dæma sigurinn af Hamilton, ef að þetta hefði verið Ferrari þá hefði ekkert verið dæmt :evil:
Sammála, en McLaren er búið að áfría. Vonandi snýr dómstóll FIA þessu máli til réttrar vegar að nýju.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#45
Skemmtileg keppni þarna í gær, ...en ég held að ég sé hættur að nenna að horfa á þetta! :evil:

Mín skoðun er sú að FIA (Ferrari International Assistance) er með einhæfum dómum sé að eyðileggja keppnina :!: ...Það er engu líkara en að reglum þeirra sé aðeins beint gegn einu liði. Maður veltir því fyrir sér hvort FIAT-merkið framan á Ferrari bílnum standi fyrir FIA-Team :?
Sveinn

#46
Já, maður er alveg að missa áhugan á þessari Formúlu 1. Finnst orðið talvert halla á McLaren-Mercedes og um leið verið að hampa Ferrari.
Ekki gaman að sporti þar sem búið er að ákveða fyrirfram hvaða lið á að vinna og öll tiltæk brögð notuð til þess.
Siggi
Mercedes-Benz E500 ´03 8)

Mercedes-Benz makes cars, others only make vehicles

#47
Fór þetta nokkuð á milli mála, hann stytti sér örugglega leið, en hvort það hafi ráðið úrslitum efast ég um :?
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370

Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000

#48
hjalti.g skrifaði:Fór þetta nokkuð á milli mála, hann stytti sér örugglega leið, en hvort það hafi ráðið úrslitum efast ég um :?
Hamilton var í návígisbaráttu við Kimi sem klippti á hann í beygju og neyddi hann útaf. Hann fór útaf til að forðast samstuð og hann komst framúr tímabundið þess vegna, ...hægði síðan greinilega á sér og gaf forystuna eftir eins og lög gera ráð fyrir og tók svo aftur framúr í beinum framhaldi á löglegan hátt.

Þetta var bara skemmtileg rimma sem gerir kappakstur í F1 þess virði að horfa á hann. Annað en hringaksturinn sem þetta vill oft vera.
Sveinn

#49
Tekið af MBL:
„Versti dómur í sögu formúlu-1

Niki Lauda, sem keppti á sínum tíma fyrir Ferrari og varð þrisvar sinnum heimsmeistari ökuþóra í formúlu-1, gagnrýndi úrskurð dómaranna í Spa fyrir að hafa sigur í belgíska kappakstrinum af Lewis Hamilton hjá McLaren.

Eins og við var að búast gagnrýna breskir fjölmiðlar ákvörðun dómaranna í dag. Þar gengur Daily Mail einna lengst og segir að Hamilton sé „fórnarlamb samsæris gegn McLaren“ og fyrir „mengaðri íþrótt“ fari Alþjóða akstursíþróttasambandið FIA.

Lauda þykir tala fyrir munn margra er hann tjáði sig um dómarana. „Þetta er versti úrskurður í sögu formúlu-1. Sérvitrasti dómur sem ég hef nokkru sinni séð.

Það er gjörsamlega óásættanlegt að þrír embættismenn [dómararnir] hafi áhrif á titilkeppni með þessum hætti,“ sagði meistarinn fyrrverandi sem er formúluskýrandi þýsku sjónvarpsstöðvarinnar RTL.

McLaren hefur ákveðið að áfrýja niðurstöðu dómaranna, en til þess hefur liðið frest fram á næsta sunnudag. Hugsanlegt er að það verði til einskis því tæknilega var refsing Hamiltons fólgin í akstursvíti sem felst í að aka aukalega gegnum bílskúrareinina.

Þar sem dómararnir drógu ákvörðun þar til eftir að kappakstrinum var lokið gat Hamilton ekki tekið vítið út. Undir þeim kringumstæðum er 25 sekúndum bætt við lokatíma viðkomandi í keppninni. Og samkvæmt reglum verður gegnumakstursvíti, sem veitt er meðan á keppni stendur, ekki áfrýjað.

Málið þykir þó kunna að líta öðru vísi út þar sem dómararnir kölluðu ökumennina fyrir sig og fulltrúa liðanna og gáfu þeim tækfæri á að útskýra málstað sinn áður en þeir felldu dóm. Slíkt er undir engum kringumstæðum gert ef akstursvíti er úthlutað meðan á keppni stendur.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019
cron