Re: MB 200 W123 1981

#22
Varðandi hæðina, þá féll ég yfir þessa teikningu af 230E.

Þarna má sjá að hæð frá vegi upp að neðri brún á húddi á að vera sú sama og hæð frá vegi upp að neðri brún á lista á skottloki - 760mm

Ég mældi hjá mér bílinn og átti svona hálfpartinn von á að þurfa að lækka hann að aftan. Það kom mjög á óvart að sjá hann upp á millimeter í réttri hæð að framan og kannski 2mm undir hæð að aftan. Mældur stútfullur af bensíni, stendur á lítið slitnum 175/80R14 sem líklega eru 2-3mm minni í radíus en orginal.
Erlingur Bjarnason

Re: MB 200 W123 1981

#23
Ozeki skrifaði:Varðandi hæðina, þá féll ég yfir þessa teikningu af 230E.

Þarna má sjá að hæð frá vegi upp að neðri brún á húddi á að vera sú sama og hæð frá vegi upp að neðri brún á lista á skottloki - 760mm

Ég mældi hjá mér bílinn og átti svona hálfpartinn von á að þurfa að lækka hann að aftan. Það kom mjög á óvart að sjá hann upp á millimeter í réttri hæð að framan og kannski 2mm undir hæð að aftan. Mældur stútfullur af bensíni, stendur á lítið slitnum 175/80R14 sem líklega eru 2-3mm minni í radíus en orginal.
Á myndinni stendur að bíllinn þar sé á 175R14. Það er 175/80 R14 þannig hann er voðalega orginal í hæð greinilega!
Ásgeir Örn Arnarson
S: 8460963

M.Benz E420 '93 sportline "AMG"
M.Benz 190e 3.0 twinturbo '89 bsk sportline
M.Benz 190e 2.0 '91 - seldur
M.Benz 300ce '88 - seldur
M.Benz 280se '83 - seldur
M.Benz 230e '83 - seldur

Re: MB 200 W123 1981

#24
Já, þeir komu á 175R14 upphaflega og það er reyndar ónotað varadekk í skottinu af þeirri stærð.

En prófíllinn á dekkjunum á þessum tíma er 82. Þau fást hinsvegar ekki nema á svona fjórföldu verði á við stærðir dagsins í dag. Það má nálga þetta með 175/80, 195/70 eða 195/75
Erlingur Bjarnason

Re: MB 200 W123 1981

#25
Smá update á þennan.
Kominn á álfelgu-gang með nýjum vetrardekkjum. Það var nú eiginlega gert til að ná stálfelgunum undan og mála. Svo eru ný sumardekk á leiðinni frá USA með hvítum hring.

Ég tók svo af honum Y númerið, var ekkert að tengjast því. Setti þetta M númer á hann, það eru sennilega bara Benz hnetur sem átta sig á því hvað er sniðugt við það.
Erlingur Bjarnason
Viðhengi
20131123_131328.jpg

Re: MB 200 W123 1981

#28
Þetta er rosalega flott númer!