Þessi bíll er búinn að standa alveg ótrúlega lengi þarna og örugglega lengur en mánuð. Þetta er náttúrulega hirðuleysi eiganda að kenna að mestu. Fyrst er ég sá hann þarna var búið að brjóta í honum eina eða tvær rúður. Næst er ég sá hann var eitthvað búið að fjölga rúðunum og svo þetta. Það er eðlilegt ef eitthvað fær að lyggja svona umhugsunarlaust sem búið er að skemma eitthvað að þessir skemmdarvargar haldi að öllum sé sama um viðkomandi hlut og gangi bara vasklega til verks og klári við hlutina.
Það er hinsvegar algerlega ófyrirgefanlegt þetta virðingarleysi að vera að skemma svona eigur annara, en ekki síður það að vera að espa skemmdarvargana upp með því að hafa svona uppstillt verkefni fyrir þá í margar vikur.
Mér finnst þetta líka lýsa einstöku dómgreindarleysi og aðgerðarleti lögreglu sem er alténnt viðloðandi vandamál í okkar landi. Hvers vegna leyfa þeir númerslausum bíl að liggja inni á eitthverju bílastæði við þjóðvegin í margar vikur og það með brotnar rúður líka. Hvers vegna eru þessi menn ekki löngu búnir að fjarlægja þetta á kostnað eiganda. Svona dót á ekki að liggja við þjóðveginn svo vikum skipti. allra síst ef það er farið að vinna eitthver skemmdarverk á þessu. Það þarf ekki að segja mér það að það hafi ekki ekið fram hjá þessu lögreglubíll allar þær vikur sem þessi bíll er búinn að vera þarna. En það verður seint í þessu landi sem eitthvað gagn verður af lögreglunni á eitthverju sviði. Þeir eru næstum því algerlega gagnslaust fyrirbæri að mínu mati.
#11
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...