Skemmdir

#14
Svo ég útlisti þetta frekar þá fer þetta mál fyrir dóm, þar verða þessir piltar að öllum líkindum dæmdir til refsingar og gerða á þá skaðabótakrafa vegna þeirra skemmda sem þeir hafa ollið, þar sem þeir eru ekki fjárráða þá verður í kjölfarið gerð krafa á foreldrana um að gangast í ábyrgð.

#15
já ég skil það vel, en ég var bara að segja þetta eftir Geir Jóni:

Að sögn Geir Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins, er hægt að sækja piltana til saka fyrir brot sín. Þeir hafa allir náð sakhæfisaldri. Ekki sé þó hægt að krefja þá um greiðslu fyrir skemmdirnar. „Það verða örugglega gerðar bótakröfur en þeir eru ekki fjárráða. Og það er heldur ekki hægt að ganga á foreldrana. En það getur vel verið að þeir grípi til þess að bæta tjónið. Ég get ekkert fullyrt um það."
-Andri Snær
cron