Hjólabúnaður að framan

#1
Sælir,

Félagi minn er á '01 C32, ekinn rétt um 80 þús.
Bíllinn er í alla staða ótrúlega þéttur og náttúrulega ekkert nema snilld að keyra þetta.

En það er eitt sem ég er að velta fyrir mér, það er svona ,,hringl" eða kannski frekar hljóð eins og það sé e-ð laust í hjólabúnaði að framan, þá finnur maður helst og aðallega þegar það kemur ójafna eða hola í veginum.
Kannast e-r við þetta, hvort að þetta sé e-ð gúmmí eða fóðringar við gorm eða dempara sem kominn er tími á að skipta.

Endilega látið mig vita - leiðinlegt þegar maður finnur fyrir svona á annars þéttum bíl!


#2
hljómar eins og ballansstöng eða eitthvað... en ég hef ekki mikið vit á þessu :roll:
Björn Ingi Björnsson
Sauðárkrókur

Jeep Grand Cherokee '01
Yamaha YFZ450 SE II '08 Fjórhjól - Selt
Skoda Fabia Combi '01
Yamaha V-Max 500cc '98 vélsleði - Selt
Kawasaki KX250F (290cc kit) '07 - Selt
Subaru Legacy 2.0L '00 - Seldur
Jeep Cherokee '99 V8 4.7L Limited - seldur
Jeep Cherokee '87 4.0 High output - Seldur
Can-Am Renegade 800cc 4x4 götuskráð - Selt
Suzuki Quadracer LT-R450 '07 götuskráð - Selt
Skoda Octavia GLXi 1600 '98 - Seldur
SMC Captain 300cc götuskráð fjórhjól '07 - Selt
Jeep Grand Cherokee '97 4.0 High Output - seldur
Polaris Predator 500cc '03 - Selt
Fiat Uno 903cc '88 Bleikur - seldur
Mercedes Benz C36 AMG '94 - seldur
Mercedes Benz 190 E 2.3 '83 - seldur
Ford Bronco II '89 - seldur
Mercedes Benz 190 E 2.6 '89 - seldur
Seat Ibiza Special 903cc '90 - seldur
Toyota Corolla DX 1300cc '85 - seldur

#3
Þetta er W203 bíll og því er þetta að öllum líkindum ballansstangarsamband sem þarf að skipta um. Ekkert dýrt neitt, en hundleiðinlegt hljóð.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#4
Eru einhverjar hlífar fyrir innan diskinn ? Hef lent í því að þegar skipt var um bremsuklossa að aftan hjá mér fór ég að heyra svona hringl þegar ég keyrði í holur eða ójöfnur þar sem kom svona létt högg á hjólið, í mínu tilfelli var ástæðan sú að (hvað á að kalla þetta, slitefni? kolefni? slitflötur?) læningin af klossanum að innanverðu hafði brotnað af klossanum og lá inn á milli disksins og hlífarinnar og olli þessu hringli. Og þess má geta að umboðsverkstæðið fann ekkert út úr þessu aukahljóði og sögðu að það væri ekkert tengt klossaskiftunum !!! Spurning um að kippa felgunni af og athuga hvort eitthvað sé laust þarna á milli disks og hlífar (ef það er hlíf :) )

Taxi

#5
ég var með svona létt högg og leiðindahljóð sem komu þegar ég fór í holu, ekki mikið en nóg til þess að það myndi pirra mann, enda keyrandi Benz :) hvarf alveg þegar ég skipti um fóðringar í ballancestönginni mun þéttari fílingur að keyran núna
Subaru Legacy/Outback 98 Turbo
190E 2.0 91' Sportline Seldur